Fundargögn til Reykjavíkur og til baka Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. desember 2013 09:30 Eva Dögg Þorsteinsdóttir skoðaði umslagið frá hreppnum eftir bókun sveitarstjórans og sá að það var merkt sem B-póstur. Mynd/Úr einkasafni. „
Mér finnst þetta mjög ósanngjarnt þar sem ekkert er við póstþjónustuna að sakast,“ segir Eva Dögg Þorsteinsdóttir sem situr ein í minnihluta í sveitarstjórn Mýrdalshrepps. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á föstudag sat Eva hjá þegar sveitarstjórn afgreiddi fjárhagsáætlun næsta árs þriðjudaginn 10. desember. Sagði hún fundargögn hafa borist henni aðeins sólarhring fyrir fund og að hún hefði ekki verið boðuð á vinnufundi við gerð fjárhagsáætlunarinnar. Ásgeir Magnússon sveitarstjóri bókaði á fundinum að fundargögnin hefðu verið sett í póst á Vík fimmtudaginn 5. desember. Óásættanlegt væri að Eva hefði ekki fengið gögnin fyrr. „Sveitarstjóri og oddviti sáu um að koma fundargögnum í póst og þetta var sent með B-pósti þannig að það var aldrei möguleiki fyrir mig að fá gögnin fyrr en á mánudeginum því B-póstur fer allur til Reykjavíkur í flokkun og póstur sem er sendur á fimmtudegi með B-pósti kemur aftur til Víkur á mánudegi,“ útskýrir Eva. „Ég tel markmið bókunarinnar hafi fyrst og fremst verið að beina athyglinni frá því að mér var haldið frá umræðu um fjárhagsáætlun,“ segir Eva. „Ég sit ein í minnihluta, svo valdið er algerlega hjá þeim ef þau vilja, en að halda mér frá umræðu er ólíðandi.“ Ásgeir Magnússon sveitarstjóri segir Evu hafa verið frjálst eins og öðrum að leggja eittvað til við fjárhagsáætlun. „En ég held að hún hafi ekki lagt fram neina tillögu. Þetta er bara nöldur, það er ekki hægt að orða það öðruvísi,“ segir sveitarstjórinn sem kveður það hafa verið oddvitann sem skaust með fundargögnin í póst. Það hljóti að vera mistök póstsins að gögnin fóru í B-póst. „Og eins furðulegt og það nú er sendir pósthúsið í Vík B-póst fyrst til Reykjavíkur áður en hann kemur til Víkur. Þetta er bara fíflagangur,“ segir sveitarstjórinn. Brynjar Smári Rúnarsson, markaðsstjóri Íslandspósts, segir í yfirlýsingu að valinn hafi verið B-póstur þegar bréfið var póstlagt. „Sveitarstjórinn á Vík hefði því þurft að senda bréfið í A-pósti til þess að tryggja það að viðtakandi fengi umrætt bréf á réttum tíma,“ segir markaðsstjórinn.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira