Innlent

Neitar að staðfesta hvort von er á tilkynningu um aðgerðir

Geir Haarde forsætisráðherra segist hafa fundað með bankastjórum Seðlabankans á þriðjudag en neitar að staðfesta að yfirvofandi sé tilkynning um ráðstafanir í peningamálum.

Geir segir í viðtali við Financial Times að ríkisstjórnin ætli að grípa til aðgerða til að refsa spákaupmönnum sem hafi veðjað á fall íslensku krónunnar.

Samkvæmt heimildum Stöðvar tvö fer nú fram áköf vinna í Seðlabankanum við undirbúning þess að afla lausafjár í erlendri mynt, meðal annars með aðkomu Evrópska seðlabankans og Englandsbanka. Geir segist hafa átt fund með Seðlabankanum.

Í Financial Times segist Geir ekki vilja greina frá tímasetningu aðgerða því ekki gangi að setja bjarnargildru og segja svo birninum frá henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×