Innlent

Bílstjórar mótmæla við fjármálaráðuneyti

Bílstjórar mótmæla nú við Fjármálaráðuneytið í Arnarhvoli við Lindargötu. Þar er nokkur fjöldi saman kominn en í fréttum Stöðvar 2 kom fram að lögregla hafi meinað þeim aðgang að ráðuneytinu. Ef tilgangurinn hefur verið að hitta fjármálaráðherra hefði það aldrei gengið, þar sem Árni mun liggja veikur heima hjá sér. Þetta kom fram á þingfundi í morgun.

Bílstjórar hafa verið víða á ferð í dag og meðal annars hefur sést til þeirra í Öskjuhlíðinni og á Snorrabraut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×