Lífið

Sendiherra stefnt á hvíta tjaldið

(Frá vinstri) Ingvar Þórðarson, Bragi Ólafsson, Úa Matthíasdóttir hjá réttindaskrifstofu Forlagsins og Júlíus Kemp. Skáldið segist bæði vera hrætt og spennt fyrir því að Sendiherrann verði færður upp á hvíta tjaldið.
(Frá vinstri) Ingvar Þórðarson, Bragi Ólafsson, Úa Matthíasdóttir hjá réttindaskrifstofu Forlagsins og Júlíus Kemp. Skáldið segist bæði vera hrætt og spennt fyrir því að Sendiherrann verði færður upp á hvíta tjaldið.
„Mér líst mjög vel á þetta og það sem Ingvar Þórðar­son ætlar sér, það gerist,“ segir rithöfundur­inn Bragi Ólafsson. Kvikmyndafélag Íslands hefur keypt kvikmyndaréttinn á skáldsögunni Sendiherranum og er fyrsta uppkast að handritinu eftir Jónas Knútsson tilbúið. Bragi kveðst vongóður um að bókin verði að kvikmynd. Íslenskir kvikmyndagerðar­menn hafa reynt við aðrar bækur rithöfundarins, svo sem Hvíldardaga, fyrstu skáldsögu Braga, og Gæludýrin en Óskar Jónasson hugðist gera klukkustundarlanga sjónvarpsmynd eftir þeirri bók.

Bragi segist vera bæði spenntur og dauðhræddur. „Kvikmynd getur lifað alveg sjálfstæðu lífi og bókin líka. Og mér finnst mjög skemmtilegt að þeir skyldu sjá eitthvað myndrænt í Sendiherranum því hún gerist mikið innra með aðalsögupersónunni,“ segir Bragi en sjálfstætt framhald af Sendiherranum, Handritið, kemur einmitt út fyrir þessi jól.

Júlíus Kemp hjá Kvikmyndafélaginu segir Sendiherrann verða settan í algjöran forgang hjá þeim. Kvikmyndagerðarmenn hafa verið duglegir við að tryggja sér kvikmyndarétt á skáldsögum á undanförnum árum án þess að mikið hafi gerst en Júlíus segir þá vera harðákveðna í að koma bókinni upp á hvíta tjaldið. „Við tókum okkur góðan tíma því bókin kom út 2007. Við veltum þessu mikið fyrir okkur en viljinn er mjög einbeittur,“ segir Júlíus og staðfestir um leið að til greina komi að ráða erlendan leikstjóra í verkið. Þeir hafi meðal annars horft til Finnlands og Þýskalands í þeim efnum. „Það er bara allt opið, veiðarfærunum hefur allavega verið hent út.“- fgg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.