Sendiherra stefnt á hvíta tjaldið 17. nóvember 2010 14:30 (Frá vinstri) Ingvar Þórðarson, Bragi Ólafsson, Úa Matthíasdóttir hjá réttindaskrifstofu Forlagsins og Júlíus Kemp. Skáldið segist bæði vera hrætt og spennt fyrir því að Sendiherrann verði færður upp á hvíta tjaldið. „
Mér líst mjög vel á þetta og það sem Ingvar Þórðarson ætlar sér, það gerist,“ segir rithöfundurinn Bragi Ólafsson. Kvikmyndafélag Íslands hefur keypt kvikmyndaréttinn á skáldsögunni Sendiherranum og er fyrsta uppkast að handritinu eftir Jónas Knútsson tilbúið. Bragi kveðst vongóður um að bókin verði að kvikmynd. Íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa reynt við aðrar bækur rithöfundarins, svo sem Hvíldardaga, fyrstu skáldsögu Braga, og Gæludýrin en Óskar Jónasson hugðist gera klukkustundarlanga sjónvarpsmynd eftir þeirri bók. Bragi segist vera bæði spenntur og dauðhræddur. „Kvikmynd getur lifað alveg sjálfstæðu lífi og bókin líka. Og mér finnst mjög skemmtilegt að þeir skyldu sjá eitthvað myndrænt í Sendiherranum því hún gerist mikið innra með aðalsögupersónunni,“ segir Bragi en sjálfstætt framhald af Sendiherranum, Handritið, kemur einmitt út fyrir þessi jól. Júlíus Kemp hjá Kvikmyndafélaginu segir Sendiherrann verða settan í algjöran forgang hjá þeim. Kvikmyndagerðarmenn hafa verið duglegir við að tryggja sér kvikmyndarétt á skáldsögum á undanförnum árum án þess að mikið hafi gerst en Júlíus segir þá vera harðákveðna í að koma bókinni upp á hvíta tjaldið. „Við tókum okkur góðan tíma því bókin kom út 2007. Við veltum þessu mikið fyrir okkur en viljinn er mjög einbeittur,“ segir Júlíus og staðfestir um leið að til greina komi að ráða erlendan leikstjóra í verkið. Þeir hafi meðal annars horft til Finnlands og Þýskalands í þeim efnum. „Það er bara allt opið, veiðarfærunum hefur allavega verið hent út.“- fgg
Mest lesið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Fleiri fréttir Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Sjá meira