Alþingi samþykkir breytingar á húsnæðismálalögum 10. desember 2008 16:11 Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra. MYND/GVA
Samþykkt hefur verið á Alþingi frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um breytingu á lögum um húsnæðismál. Lögin veita heimild fyrir því að lengja lánstíma lána vegna greiðsluerfiðleika í allt að 30 ár í stað 15 ára og hámarkslánstími hjá Íbúðarlánasjóði er lengdur úr 55 árum í 70 ár. „Lenging hámarkslánstíma í 70 ár er gerð til að tryggja að allir geti nýtt sér heimild til skuldbreytingar láns í 30 ár," segir í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Þá er sjóðnum nú heimilt að leigja eða fela öðrum með samningi að annast leigumiðlun með íbúðarhúsnæði sem sjóðurinn hefur leyst til sín á nauðungarsölu. Komið til móts við fólk í greiðsluvanda „Breytingarnar eru liður í aðgerðum sem ráðherra hefur gripið til í samvinnu við Íbúðalánasjóð til að auka möguleika sjóðsins á því að koma til móts við lántakendur í greiðsluvanda. Heimild Íbúðalánasjóðs til að leigja eða fela öðrum að annast útleigu íbúðarhúsnæðis hefur þann megintilgang að gera leigjendum íbúða sem sjóðurinn hefur eignast á nauðungaruppboði, eða eigendum íbúða sem hafa misst þær vegna greiðsluerfiðleika, kleift að búa áfram í íbúðinni í tiltekinn tíma gegn leigu," segir einnig. Skammtímaúrræði Íbúðalánasjóður getur sjálfur annast útleigu íbúða eða falið það öðrum með samningi að því er fram kemur í tilkynningunni. „Til dæmis gæti sjóðurinn samið við sveitarfélög um að annast þetta verkefni. Ekki er gert ráð fyrir að Íbúðalánasjóður eigi og leigi íbúðarhúsnæði til lengri tíma heldur sé hér fyrst og fremst um skammtímaúræði að ræða. Gert er ráð fyrir að nánar verði kveðið á um skilyrði varðandi útleigu sjóðsins á íbúðarhúsnæði og fyrirkomulag þess í reglugerð."
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira