Arsenal verður að vinna 13. október 2005 15:02
Átta leikir fara fram í meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld. Línur eru farnar að skýrast en af þessum sextán liðum sem keppa í kvöld hafa tvö lið, Inter Milan og Chelsea tryggt sér sæti í sextán lið úrslitum. Barcelona og AC Milan eiga bæði heimaleik í F-riðli og með jafntefli eða sigri tryggt sér sæti í næstu umferð og sömu sögu er að segja af þýska liðinu Werder Bremen sem þarf að vinna Inter Milan. Pressa á Arsenal Einhver athyglisverðasti leikur þessarar umferðar verður viðureign PSV og Arsenal en bæði lið eru sannkölluð stórveldi í heimalöndum sínum. Bæði glíma þó einnig við lakan árangur í Meistaradeildinni og vilja fyrir alla muni vinna bug á því sem fyrst. PSV er líklegra til afreka þar sem liðið hefur þriggja stiga forskot í riðlinum og hefur skorað marki meira en Arsenal en sé litið til baka hefur enska liðið aldrei tapað fyrir Hollendingunum áður. Ólíklegt er að Wenger hafi áhuga á að breyta þeirri staðreynd. Rosenborg fær gríska liðið Panathinkaikos í heimsókn en bæði þau lið geta komist upp úr riðlinum lendi Arsenal í ógöngum en slíkt verður að teljast í hæsta máta ólíklegt. Norðmennirnir eru að leika sinn síðasta heimaleik í riðlinum og einn einasti sigur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar yrði vel þeginn. Erfitt hjá Celtic Í riðlinum ráða ríkjum AC Milan og Barcelona, bæði með níu stig eftir fjóra leiki, og bæði eru á heimavelli gegn minni spámönnum. Milan mætir Shaktar Donetsk frá Úkraínu og þrátt fyrir að Shaktar hafi þegar komið mörgum á óvart með líflegri spilamennsku er lið Milan of stór biti á útivelli. Þurfi einhverjir hvatningar við fyrir leiki kvöldsins er það lið Celtic sem fær það óþægilega verkefni að hlaupa út á Nou Camp í kjölfar stórsigurs Barcelona á Real Madrid um helgina. Þar spilaði liðið einn sinn besta fótbolta í langan tíma og sjálfstraustið í algjöru hámarki innan þess. Þrátt fyrir að hæfileikamenn leiki með Skotunum má mikið ganga á nái þeir hagstæðum úrslitum hér. Bremen áfram með sigri Það segir meira en mörg orð um belgísku knattspyrnuna að lið Anderlect, sem mætir Valencia á heimavelli, hefur ekki fengið eitt stig enn sem komið er og fengið á sig tólf mörk í fjórum leikjum. Valencia hefur ekki spilað sinn besta bolta heldur undanfarið en þeir eru engu að síður klassa fyrir ofan Belgana og þurfa sigur til að halda veikum vonum sínum á floti. Þýskalandsmeistararnir í Bremen fá Inter í heimsókn en mesta pressan er af báðum liðum enda fimm stig í Valenciu í þriðja sæti. Sigri Bremen má fullyrða að spænska liðið sé úr leik þar sem Inter tekur á móti Anderlecht í lokaumferðinni. Chelsea drottnar Lið Chelsea drottnar yfir riðlinum og eru þegar búnir að tryggja sig áfram. Mourinho er þó ekki kappinn til að slaka á klónni vegna þess og á brattann verður að sækja fyrir Paris SG. Annað sætið er laust til umsóknar og það gæti verið næg gulrót til að Frakkarnir sýni betri leiki en hingað til. Aðstæður í Moskvu eru svipaðar eða verri fyrir Portúgala en á Kárahnjúkum og það hefur mikið að segja þegar í leik CSKA Moskvu og Porto verður komið. Liði Porto tókst ekki að taka þrjú stig gegn CSKA í Portúgal og er án sigurs í riðlinum og fátt sem bendir til að breytinga sé að vænta.
Íþróttir Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Grindavík - Tindastóll | Úrslitaeinvígið hefst Körfubolti Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Enski boltinn Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Handbolti Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Enski boltinn Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Enski boltinn Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Íslenski boltinn Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Íslenski boltinn Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Körfubolti Fleiri fréttir Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Grindavík - Tindastóll | Úrslitaeinvígið hefst Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Lið Benónýs í góðri stöðu eftir dramatískt sigurmark Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Skjöldur á loft hjá Glódísi og Bayern Munchen Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar hefst Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga „Þreytandi að þurfa að tala um dómarana“ Sjá meira