Sport

Hálfleikstölur úr Meistaradeildinn

Í A-riðli er ennþá markalaust hjá Dinamo Kiev og Roma, en Real Madrid er undir á Santiago Bernabeu gegn Bayer Leverkusen 1-0, en Dimitar Berbatov skoraði marið. Í B-riðli er markalaust hjá bæði Monaco og Liverpool og hjá Olympiakos og Deportivo. Liverpool varð fyrir áfalli þegar Spánverjinn Luis Garcia meiddist strax í upphafi leiks. Í C-riðli kom Gary Neville Man Utd yfir gegn Lyon á 19. mínútu en Mahamadou Diarra jafnaði fimm mínútum fyrir leikslok og staðan þar 1-1 í hálfleik. Í hinum leiknum er Sparta frá Prag 1-0 undir á heimavelli gegn Fenerbahce, en Radoslav Kovac varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Í D-riðli eru Bayern Munich á góðri leið með að tryggja sér farseðilinn í 16-liða úrslit, en þeir eru 3-0 yfir gegn Maccabi Tel-Aviv frá ÍSrael. Claudio Pizarro kom Bayern yfir á 12. mínútu, Hasan Salihamidzic skorað svo á þeirri 37. og Torsten Frings kom þeim í 3-0 mínútu fyrir hálfleik. Í hinum leiknum í A-riðli skorað Marcelo Zalayeta eina mark Juventus gegn Ajax og stefnir í fimmta 1-0 sigur Juve í keppninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×