Enn liggur leiðin niður á við Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. apríl 2009 22:35 Mark Viduka. Táknræn mynd fyrir gengi Newcastle. Nordic Photos / Getty Images
Newcastle gerði í kvöld markalaust jafntefli við Portsmouth á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn í liði Portsmouth sem er í fjórtánda sæti deildarinnar með 38 stig, sjö stigum frá fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Newcastle er hins vegar í miklum vandræðum. Liðið er í fallsæti með 31 stig, rétt eins og Middlesbrough sem er reyndar með lakara markahlutfall. Ekkert lið hefur unnið jafn fáa sigra í deildinni og Newcastle eða sex talsins. Liðið þarf að minnsta kosti að vinna einn leik til viðbótar til að eiga einhverja vonarglætu um að halda sæti sínu í deildinni en síðast vann Newcastle í febrúar síðastliðnum - þá gegn botnliði West Brom. Það er eini sigur liðsins til þessa á árinu. Þeir Michael Owen, Obafemi Martins og Mark Viduka voru í þriggja manna sóknarlínu Newcastle. Allt þekktir markaskorarar en þrátt fyrir að hafa fengið góð færi tókst þeim ekki að skora í kvöld. David James varði frá þeim Owen og Martins er þeir voru sloppnir í gegnum vörn Portsmouth. En Steve Harper varði einnig vel frá Nadir Belhadj og þá átti Richard Hughes skalla í stöng undir lok leiksins. Portsmouth hefði þar getað stolið sigrinum. Áhorfendur á St. James' Park púuðu á sína menn í leikslok enda hefur Newcastle aðeins skorað fjögur mörk í síðustu átta leikjum sínum. „Við þurfum að vinna sigur. Tíminn er að hlaupa frá okkur," sagði Alan Shearer, stjóri Newcastle, eftir leikinn. Hann var þrátt fyrir allt bjartsýnn fyrir næsta leik en þá mætir Newcastle liði Liverpool á Anfield. „Við gætum fengið eitthvað á Anfield og svo eigum við tvo heimaleiki. Við verðum að fá sex stig úr þeim. Ég tel að þetta muni ekki ráðast fyrr en í lokaumferðinni en það er ljóst að við þurfum að fara að koma okkur á skrið."
Mest lesið 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Sjá meira