Hata allir Liverpool eða kannski bara stuðningsmenn Manchester United? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2019 13:00 Mohamed Salah fagnar marki með Liverpool. Getty/Richard Heathcote
BBC kannaði hljóðið í nokkrum enskum fótboltaáhugamönnum þar sem umræðuefnið var mögulegur meistaratitill Liverpool í vor. Það lítur út fyrir það á samfélagsmiðlum að mjög margir séu á móti velgengni Liverpool sem hefur ekki orðið enskur meistari í 29 ár. Liverpool hefur spilað frábærlega á þessu tímabili, liðið er með heillandi og hrífandi knattspyrnustjóra sem hefur byggt upp þetta lið í þrjú ár og þá er Liverpool með fullt af flottum leikmönnum og spilar skemmtilegan fótbolta. Það er líka langt frá því að stuðningsmenn Liverpool séu að fanga sigri á hverju ári. Það er því ekkert skrýtið að blaðamaður BBC kafi aðeins dýpra ofan í það hvaðan allt þetta Liverpool hatur komi meðal stuðningsmanna annarra félaga á Englandi (og Íslandi). Eða eru það bara læti á yfirborðinu. Spurningin hjá BBC var um hvort að hlutlausu stuðningsmennirnir vilji alls ekki að Liverpool verði loksins enskur meistari eða hvort þetta sé bara goðsaga á samfélagsmiðlum. Liverpool er með fjögurra stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en tapaði síðasta leik á móti Englandsmeisturum Manchester City. Liverpool gat því náð tíu stiga forskoti á City en með sigrinum komust City-menn aftur á fullt inn í baráttuna um titilinn.Do neutrals not want Liverpool to win the Premier League? Or is it just a social media myth? We’ve taken a lookhttps://t.co/sY8cXXvRYkpic.twitter.com/4sdOK79DAI — BBC Sport (@BBCSport) January 11, 2019Fyrir leikinn voru stuðningsmenn Manchester United að lýsa því yfir að þeir héldu nú með nágrönnunum sínum í Manchester City til að koma í veg fyrir sigur Liverpool. Sumir hótuðu því líka að yfirgefa landið ef Liverpool myndi loksins taka titilinn. Það þarf ekki að koma mikið á óvart að stuðningsmenn Manchester United vilji alls ekki að Liverpool vinni titilinn en hvað með þá hjá Everton. „Það mega öll lið vinna deildina nema Liverpool. Meira að segja City,“ sagði Man United stuðningsmaðurinn Jack Buckley. Everton stuðningsmaðurinn Joe Armitage kemur kannski mörgum á óvart. „Ég hef aldrei viljað að þeir myndu vinna neitt. Á þessu tímabili hafa þeir verið með langbesta liðið og ég tel að þeir muni vinna titilinn og eigi það líka skilið,“ sagði Joe Armitage. En hvað með þá hlutlausu? Steve Taylor frá Carlisle gengur mjög langt. „Ef Liverpool vinnur deildina þá gæti það verið nauðsynlegt að yfirgefa norðurhluta Englands. Þegar Liverpool vann Meistaradeildina 2005 þá opnast næstum því hliðið niður í undirheima. Það var óbærilegt í mörg ár. Ef þeir vinna deildina þá er ekki hægt að skrifa það á einhverja heppni sem var eina leiðin til að þagga niður í stuðningsmönnum Liverpool þá,“ sagði Steve Taylor.A Liverpool fan account shared a diss track from Man Utd supporters.@bbcthree tell us all about ithttps://t.co/dz5Ne01pAqpic.twitter.com/ZscznIR17q — BBC Sport (@BBCSport) January 11, 2019„Ég vil að City vinni af því annars fengjum við ekki að heyra um annað en þennan titil Liverpool næstu 30 árin“ sagði Vic Singh, stuðningsmaður West Ham. „Það var gott að sjá Liverpool tapa einum leik og geta því ekki lengur náð taplausu tímabil. Það kom líka með spennu aftur í mótið. Svo framarlega sem Spurs verður ekki enskur meistari þá skiptir það mig engu máli hvort Liverpol eða Man. City vinni titilinn,“ sagði Scotty, stuðningsmaður Arsenal. „Ég myndi elska það að sjá þá taka titilinn. Stuðningsmennirnir þeirra trufla mig ekki, þeir eru bara ástríðufullir og trúa á sitt lið. Það er svo dæmigert fyrir Englendinga að hata stuðningsmenn Liverpool fyrir alla bjartsýnina,“ sagði Samuel Mooney, stuðningsmaður Nottingham Forrest. „Eins mikið og ég þoli ekki Liverpool þá vil ég frekar að þeir vinni en City. Liverpool á góða möguleika núna og mér finnst liðið spila betri fótbolta en City,“ sagði Kerry Nicholls, stuðningsmaður Chelsea.#Liverpool (Interesting question) Do neutral fans not want Liverpool to win the league, or is it just a social media myth? - BBC Sport https://t.co/9CkYbLGnKo — Daniel Alemu (@DanielAlemu) January 11, 2019„Flestir vilja að Liverpool vinni. Þetta eru bara nokkrir póstar frá nokkrum öngugum mönnum á Twitter. Hver vill eiginlega að Manchester City vinni þegar liðið er byggt upp á peningum, peningum, peningum og peningum. Koma svo Liverpool,“ sagði Tommy Walker, stuðningsmaður Middlesbrough. „Ég er alveg hlutlaus og mín ósk er að öll önnur lið en Man Utd, Man City eða Chelsea vinni deildina. Þau hafa unnið 13 af síðustu 14 titlum. Það væri allt í lagi ef Arsenal tæki þetta en ef Liverpool eða Spurs vinna þá fengjum við nýja meistara í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Christopher Heward við BBC. „Liverpool frekar en City. Stuðningsmenn Liverpool geta verið pirrandi en City átti enga stuðningsmenn fyrr en árið 2010.,“ sagði Ryan Ward. Það má lesa fleiri skemmtileg svör með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Sport Óskiljanlegur miði Vestra vekur athygli Fótbolti Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Íslenski boltinn Gascoigne fannst meðvitundarlaus og fluttur á spítala Fótbolti Sjáðu rauða spjaldið og markið sem skaut Valsmönnum á toppinn Fótbolti Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Enski boltinn Viss um að Arsenal hafi gert rétt í máli Partey Fótbolti Liverpool samþykkir að greiða þrettán milljarða fyrir Ekitike Fótbolti Rashford mættur til Barcelona Fótbolti Segir árásum fjölga eftir því sem kvennaboltinn stækkar Fótbolti Fleiri fréttir Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Liverpool langt komið með að kaupa Ekitike Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Sjá meira