Swansea hafði betur í slagnum um Wales

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. vísir/getty
Swansea hafði betur gegn Cardiff, 1-0, er liðin mættust í slagnum um Wales í ensku B-deildinni í dag.

Leikurinn var ekki mjög fjörugur en fyrsta og eina mark leiksins leit dagsins ljós á 24. mínútu leiksins.

Þá skoraði Ben Wilmot eftir að Svanirnir höfðu tekið stutta hornspyrnu. Hann var einn og óvaldaður og stangaði boltann framhjá Neil Etheridge.

Cardiff gerði allt hvað þeir gátu til þess að jafna metin en bestu færin fengu Swansea undir lokin er þeir sóttu hratt á fáliðaða gestina.

Mörkin urðu ekki fleiri og lokatölur 1-0 sigur Swansea. Þeir eru nú í 4. sæti deildarinnar með 25 stig en Cardiff er í 14. sætinu með átján stig.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira