Pepsi Max mörkin fengu að skyggnast inn í lokaðan heim íslensku dómaranna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2019 11:00 Ívar Orri Kristjánsson. Vísir/Bára „
Er samtryggingin meiri í dómarastéttinni á Íslandi heldur en hjá læknum,“ spurði Logi Ólafsson einn besta dómara landsins í áhugaverðu innslagi um íslensku dómarana í Pepsi Max mörkunum.Pepsi Max mörkin fengu að skyggnast inn í lokaðan heim íslensku dómaranna þegar þeir mættu á lokaðan fund dómara á dögunum og fengu einnig að fylgja dómaratríói eftir í krefjandi leik í Pepsi Max deildinni. Í þætti Pepsi Max markanna í gær voru sýndar svipmyndir frá fundinum og þar má einnig finna viðtal Loga Ólafssonar við milliríkjadómarann Helga Mikael Jónasson. „Það eru tveir svona stórir fundir hjá okkur á hverju tímabili. Þar förum við yfir klippur úr fyrstu sex eða sjö umferðunum og svo aftur úr næstu sex eða sjö umferðum. Þar erum við að stilla okkur inn á ákveðin brot og hvernig við ætlum að refsa þeim. Þannig að við séum að reyna að dæma þetta eins líkt og mögulegt er,“ sagði Helgi Mikael Jónasson, milliríkjadómari. Logi Ólafsson fékk líka að fylgja Helgi Mikael eftir á leik sem hann dæmdi á milli ÍA og Vals í 14. umferð Pepsi Max deildarinnar. „Þú ert að taka að þér krefjandi starf í 90 mínútur og það er aldrei pása. Þetta er mjög krefjandi starf og það ýtti mér út í þetta,“ sagði Helgi Mikael þegar hann var spurður út í allt tuðið og nöldrið sem hann þarf að sitja undir í hverjum leik. Hér fyrir neðan má sjá lengri útgáfu af innslaginu sem var sýnt í Pepsi Max mörkunum í gær.Klippa: Pepsi Max mörkin: Skyggnst inn í heim íslensku dómaranna
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport Hafþór reyndi við þyngd sem hefði fært honum tugi milljóna Sport Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Allegri og allir stjórnendur AC Milan reknir Fótbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn HM í hættu? Messi meiddist í síðasta leik sínum fyrir HM Fótbolti Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Formúla 1 Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham? Fótbolti Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Enski boltinn Tímamót á HM: Enginn leikmaður frá Real Madrid í liði Spánar Fótbolti Fleiri fréttir Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Víkingur R. - FH 5-0 | Markaveisla í Víkinni Keflavík - Þór 1-0 | Baráttusigur í nýliðaslagnum KA - Valur 0-1 | Valsmenn stöðvuðu sigurgöngu KA Allur ágóði tónleika Loga til Ingvars Sjáðu glæsimörk Gíslanna og endurkomu Eyjamanna „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ „Leið aldrei eins og við værum að sigla þessu heim“ Fékk að vita af skiptunum klukkan tvö í gær Úlfur Ágúst sleit liðband Sjá meira