Innlent

Bálreiðir netverjar herja á sjómennina tvo: „Er allt í lagi að limlesta börnin mín og drekkja þeim af því að ég er svo ógeðslegur?“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Þeir Halldór (t.v.) og Gunnar (t.h.) hafa fengið fjölda ógeðfelldra skilaboða eftir að leikarinn Jason Momoa birti nöfn þeirra og myndir á Instagram.
Þeir Halldór (t.v.) og Gunnar (t.h.) hafa fengið fjölda ógeðfelldra skilaboða eftir að leikarinn Jason Momoa birti nöfn þeirra og myndir á Instagram.
Gunnar Þór Óðinsson, annar skipverjanna á bátnum Bíldsey SH-65 sem sjást skera sporðinn af hákarli og sleppa honum aftur út í sjóinn, segir lífláts- og ofbeldishótanir sem honum og fjölskyldu hans hefur borist hlaupa á þúsundum. Þá hefur Halldór Gústafsson, hinn skipverjinn, einnig fengið fjöldann allan af níðpóstum.

Mál skipverjanna hefur vakið mikla athygli út fyrir landsteinana. Raunar svo mikla að Aquaman-leikarinn Jason Momoa birti í gær færslu á Instagram þar sem nöfn skipverjanna koma fram auk mynda af þeim og fjölskyldumeðlimum. Í kjölfar fór þeim Gunnari og öðrum skipverja, Halldóri Gústafssyni, að berast mikill fjöldi skilaboða frá fólki víðs vegar að, þar sem þeim og fjölskyldum þeirra er hótað öllu illu.

Rétt þykir að vara viðkvæma lesendur við því sem kemur fram hér að neðan. Um ofbeldis-, nauðgunar- og líflátshótanir er að ræða.

„Ég vona að einhver skeri fæturna af börnunum þínum og skilji þau eftir til þess að blæða út, litla tík,“ segir í byrjun þessara skilaboða.Skjáskot
Í samtali við Vísi segist Gunnar hafa fengið gríðarlegan fjölda skilaboða og tölvupósta, sem snúist oft um það að beita hann, og í sumum tilfellum börn hans, ofbeldi af einhverju tagi.

„Alveg endalaust af þeim sko. Er allt í lagi að limlesta börnin mín og drekkja þeim af því að ég er svo ógeðslegur,“ spyr Gunnar sem telur að Momoa hafi ákveðið að vekja athygli á málinu til þess að beina athygli að eigin ágæti.

Sjá einnig: Jason Momoa lætur skip­verjana á Bílds­ey heyra það

„Hver er tilgangur hans, þarna Aquaman [Momoa], sem hefur 12 milljón fylgjendur á eftir sér að biðja þá að finna okkur, og hvað svo? Ætlar hann að koma í heimsókn? Eða hvað, ég veit ekki hvað, það eru einhver hundruð þúsunda morðhótana að koma til manns og þetta snýst ekki lengur um einhvern hákarl, þetta snýst bara um að limlesta börnin mín og ég veit ekki hvað og hvað,“ segir Gunnar sem segist tilbúinn að bjóða Momoa í „kaffi og meðí,“ eins og Gunnar orðar það sjálfur, til þess að ræða málin.

 

Önnur skilaboð sem Gunnari bárust þar sem ýjað er að því að sendandinn hyggist hafa uppi á Gunnari og fjölskyldu hans.Skjáskot

Sá fljótt að þetta væri búið

Gunnar segir að fljótlega eftir að hann sá færslu leikarans hafi runnið upp fyrir honum að viðbrögðin, sem létu sannarlega ekki á sér standa, yrðu mikil.

„Ég sá að þetta var bara búið það gerðist mjög fljótlega. Það hefur ekki stoppað hjá manni síminn og bara hjá fjölskyldunni,“ segir Gunnar og bætir við að skilaboðin sem hann hefur verið að fá séu flest á tölvupósti, Instagram og Facebook. Aðspurður hvort hann geri sér nokkra grein fyrir umfangi skilaboðanna segir Gunnar fjölda þeirra hlaupa á þúsundum.

„Þetta eru þúsundir, það er ekkert flóknara en það. Ég er búinn að taka einhver skjáskot af þessu eftir að ég ákvað að hafa samband við ykkur [fréttastofuna]. Þetta er varla birtingarhæft. Ég skil bara ekki hvernig er í lagi að skera niður börn og henda í sjóinn, ég bara fatta það ekki.“

Hér óskar sendandi þess að börnum Gunnars verði nauðgað og þau drepin, auk þess sem Gunnar er kallaður ýmsum ljótum nöfnum.Skjáskot
Sjálfur segist Gunnar ekki ætla að tjá sig sérstaklega um myndbandið þar sem hann sést skera sporðinn af hákarli og sleppa aftur í sjóinn öðruvísi en að viðurkenna að það sem þar átti sér stað sé óréttlætanlegt.

Hefur áhrif á fjölskylduna

Gunnar segir börn hans og aðra ástvini hafa fundið mikið fyrir eftirköstum málsins, sérstaklega eftir að Momoa birti Facebook-aðgang hans fyrir ríflega tólf milljónum þeirra notenda sem fylgja honum á Instagram.

„Maður bara veit varla hvað maður á að þora að segja, maður er bara svo reiður og sár. Þetta eru bara mistök að gera þetta og allt það, bara ömurlegt. Þetta snýst ekkert lengur að skera sporð af einhverjum hákarli,“ segir Gunnar og bætir við að málið sé farið að snúast um að leggja skipverjana og fjölskyldur þeirra í einelti.

„Þetta er bara komið út í einhvern viðbjóð. Allt annar handleggur. Ég hef bara ekki séð svona, þetta er ótrúlegt. Ég vil ekki sjá hvað svona fólk gerir við hákarl ef það er svona grimmt.“

Telur Jason Momoa vera að upphefja sjálfan sig

Hinn skipverjinn sem sést á myndbandinu, Halldór Gústafsson, tekur í sama streng og Gunnar hvað varðar ástæður Jasons Momoa fyrir því að birta nöfn skipverjanna tveggja og myndir af þeim á Instagram.

Hér er þess óskað að einhver höggvi fæturna af Halldóri og honum sagt að hann geti hvergi falist eftir að Momoa gerði nafn hans opinbert á Instagram.Skjáskot
„Mér finnst hann eiginlega bara vera að upphefja sjálfan sig og hugsar ekki út í afleiðingarnar í raun og veru,“ segir Halldór sem segist einnig hafa fengið mikinn fjölda hótana og níðskilaboða í gegn um samfélagsmiðla.

„Ég get tekið þessu. Þetta hefur ekkert á mig, en þegar fólk er farið að senda foreldrum, ættingjum og vinum, þá er þetta hætt að vera fyndið. Talið þið bara frekar við mig.“

Rétt þykir að taka fram að þau skilaboð sem birtust í þessari frétt eru aðeins lítið brot þeirra skilaboða sem þeir Gunnar og Halldór hafa fengið vegna málsins.

Þá er einnig rétt að fram komi að allra grófustu skilaboðin þóttu ekki birtingarhæf, innihalds þeirra vegna.


Tengdar fréttir

Þriðja skipverjanum sagt upp

Stjórn Sæfells hf. hefur sagt upp þriðja skipverjanum á Bíldsey SH eftir að myndbandsbrot þar sem sjá má skipverja skera sporð af hákarli og sleppa honum lausum komst í birtingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×