Að sögn Gísla Marteins Baldurssonar sjónvarpsmanns gekk æfingin afar vel. Gísli Marteinn er meðlimur fjölmenns starfsliðs sem Ríkisútvarpið sendi til Ísrael.
„Þessi fyrsta æfing er aðallega til þess að fá tilfinningu fyrir sviðinu. Hvernig hljóð, dans, leikmynd og myndavélar hafa lært á atriðið í gegn um þær leiðbeiningar sem við höfum sent þeim,“ sagði Gísli í samtali við fréttastofu og bætti við að hann ræki ekki minni til þess að svona góður árangur hafi náðst á fyrstu æfingum íslenskra Eurovision-atriða í gegn um tíðina.
Sjá einnig: „Hatrið hefur yfirgefið landið“ og lagt af stað til Tel Aviv
Gísli sagði fyrsta rennsli lagsins „Hatrið mun sigra,“ eins og lag Hatara heitir, hafa hlotið einróma lof blaðamanna á svæðinu.
„Það er ekki mikil breyting á atriðinu. Það sem kemur á skjáina fyrir aftan hljómsveitina, það er aðeins búið að breyta þeim myndum,“ segir Gísli. Hann segir atriðið í grunninn vera eins og það atriði sem vann keppnina hér á Íslandi.
Þó sé búið að bæta einum leikmun við atriðið.
„Það er hnöttur sem trommugimpið stendur ofan á, eða inni í.“
Ekkert bólar á yfirlýsingu Hatara
Blaðamaður spurði Gísla út í fyrirhugaða yfirlýsingu Hatara, en hljómsveitin hafði gefið það út að von væri á yfirlýsingu frá sveitinni eftir að til Ísrael yrði komið. Kvaðst Gísli engin svör geta veitt við slíkum fyrirspurnum.„Vegir Hatara eru órannsakanlegir, þannig að það getur allt gerst.“
Hér að neðan má sjá YouTube myndband opinberrar rásar Eurovision af æfingunni.