Lífið

Amman sagði Hafþór Júlíus auman

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hafþór tók vel í grínið.
Hafþór tók vel í grínið.
Ross Smith er nokkuð skemmtilegur á Facebook og birtir hann reglulega spaugileg myndbönd.

Í einu af hans nýjasta myndbandi fékk hann ömmu sína með sér í lið og fer hún hreinlega á kostum á vaxtarræktarsýningu.

Þar fann hún meðal annars aflraunamanninn og leikarann Hafþór Júlíus Björnsson og lét hann heyra það og talaði um að hann væri nú ekkert sérstaklega sterkur, bara aumur.

Einnig gekk hún upp að fleiri aflraunamönnum með sprautu og spurði hvort þeir hefði misst hana.

Hér að neðan má sjá innslagið








Fleiri fréttir

Sjá meira


×