Enski boltinn

BBC: Tapið í gær er ekki Solskjær að kenna heldur áralangri óstjórn hjá United

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ole Gunnar Solskjær gengur af velli með leikmönnum sínum í gær.
Ole Gunnar Solskjær gengur af velli með leikmönnum sínum í gær. Getty/Michael Steele/
Ole Gunnar Solskjær fékk í gær að kynnast taptilfinningunni í fyrsta sinn síðan hann tók við knattspyrnustjórastöðunni hjá Manchester United fyrri rúmum átta vikum.

Lið Manchester United var hreinlega númeri of lítið í 2-0 tapi á móti Paris Saint Germain á Old Trafford í gær og það þrátt fyrir að franska liðið lék án tveggja stórstjarna í þeim Neymar og Edinson Cavani.

Frakkarnir voru miklu betur og lið Manchester United í raun heppið að tapa ekki leiknum mun stærra. Vonin um sæti í átta liða úrslitunum er samt afar veik enda seinni leikurinn á heimavelli franska liðsins.

Phil McNulty skrifar pistil um leikinn og þýðingu hans á BBC og hann setur ekki skuldina á norska knattspyrnustjórann. Að hans mati var þarna einfaldlega svartur veruleikinn að birtast United fólki eftir alla litríku draumóra síðustu átta vikna.





Það var mikill spenningur fyrir leikinn og væntingarnar eftir því hjá stuðningsmönnum Manchester United liðsins. Eftir tíu sigra í ellefu leikjum og meiðslahrjáða mótherja þá var allt í spilunum til að stíga stórt skref í átt að átta liða úrslitunum.

„Þetta var ekki tap sem kom til vegna þessara 90 mínútna heldur var það afleiðing af þróun mála undanfarin ár hjá Manchester United. Þessi leikur á heldur ekki að vera ráðandi í ákvörðun félagsins um að ráða Ole Gunnar Solskjær sem framtíðarstóra liðsins,“ skrifaði Phil McNulty.

„Solskjær var vissulega maðurinn í þjálfaraboxinu og ber auðvitað einhverja ábyrgð en í stóru myndinni þá var þessi leikur og þessi opinberun í boði PSG. Þetta var afleiðing af því hversu stjórnarmenn hafa leyft United að dragast mikið aftur úr á undanförnum árum,“ skrifar McNulty.





„United var óheppið að missa Jesse Lingard og Anthony Martial meidda af velli en PSG sýndi styrk að gera lítið úr fjarveru Neymar og Cavani. Lokastaðan hefði líka getað verið mun verri en David de Gea hefði ekki bjargað nokkrum sinnum. Það væri bara galin bjartsýni að halda annað en að seinni leikurinn verði eitthvað annað en formsatriði,“ skrifar McNulty.  

„Það er Solskjær að þakka, eftir þessa ellefu leiki, að það var mikil bjartsýni hjá stuðningsfólki United, en því lengur sem leikurinn gekk því minni varð hún. Þegar lokaflautið gall þá sögðu þúsundir auðra rauðra sæta sína sögu,“ skrifar McNulty.

„United er stórt félag í Evrópu og á heimsvísu á mörgum sviðum en ekki þar sem það skiptir mestu máli sem er inn á vellinum. Fáir leikmenn í United ættu þannig möguleika á að komast nálægt byrjunarliði PSG. Það væri ekki að rökstyðja val á þeim De Gea og Paul Pogba en engra annarra,“ skrifaði McNulty.





„Væri það áhætta að ráða Solskjær eða aðeins spurning fyrir Woodward og stjórnina hvort þeir séu tilbúnir að breyta út frá aðferðunum sínum undanfarin ár að ráða stór nöfn sem leiddi þá til Louis Van Gaal og seinna Mourinho,“ spyr McNulty

„Hver sem ákvörðun þeirra verður þá sýndi og sannaði leikurinn í gær og það hvernig United-liðið var yfirspilað af PSG, að þessu sinni þá hefur Manchester United ekki efni á því að taka ranga beygju ætli félagið ekki að dragast enn lengra aftur úr bestu liðum Evrópu,“ skrifaði Phil McNulty en það má lesa allan pistilinn hér.


Tengdar fréttir

Fyrsta tap Solskjær kom gegn PSG

Manchester United er svo gott sem úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tveggja marka tap fyrir Paris Saint-Germain á heimavelli sínum í kvöld. Þetta var fyrsta tap United undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.

Sjáðu mörkin sem kláruðu United

PSG fór langt með að slá Manchester United út úr Meistaradeild Evrópu í kvöld og Roma hafði betur gegn Porto þegar 16-liða úrslitin hófust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×