Bíó og sjónvarp

María segir Mads vera æðislegan og alveg lausan við stjörnustæla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mads Mikkelsen og María Thelma Smáradóttir á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Mads Mikkelsen og María Thelma Smáradóttir á kvikmyndahátíðinni í Cannes. VÍSIR/getty
Kvikmyndin Arctic var forsýnd hér á landi í gærkvöldi en Arctic skartar Maríu Thelmu Smáradóttur og dönsku ofurstjörnunni Mads Mikkelsen í aðalhlutverkum.

Leikstjóri er Brasilíumaðurinn Joe Penna. Myndin segir frá manni sem er fastur á norðurheimskautinu. Hann á von á því að vera bjargað en þegar styttist í björgunina kemur slys í veg fyrir að af henni verði. Hann þarf að ákveða hvort hann eigi að halda til í búðum sínum þar sem hann er öruggur um sinn, eða leggja í mikla hættuför í von um að honum verði bjargað.

Leikkonan María Thelma Smáradóttir á að baki leik í þáttaröðinni Föngum og hefur verið að gera góða hluti í leiklistinni að undanförnu. Hún var mætt í Bítið á Bylgjunni í morgun ásamt Lilju Ósk Snorradóttur sem er framleiðandi hjá Pegasus sem kemur að myndinni.

„Myndin er tekinn að öllu leyti hérna heima og þetta er svolítið skemmtilegt því þetta er íslensk og bandarísk meðframleiðsla. Leikstjórinn og handritshöfundurinn eru amerískri og svo er amerískt framleiðslufyrirtæki og við Pegasus sem komum að myndinni,“ segir Lilja Ósk.

„Ég fæ boð um að koma í prufu og prufan er meira og minna bara viðtal. Bara hvernig við næðum saman og hvernig stemningin var. Ég var búin að lesa handritið og svo bara daginn eftir var ég ráðin,“ segir María Thelma.

„Myndin fer fram á dönsku, ensku og tælensku en það er rosalega lítið talað í henni. Mads var mjög góður og reyndi að halda í mér lífi eftir bestu getu,“ segir María í léttum tóni.

„Mads er æðsilegur, mjög danskur og lige glad og mjög jarðbundinn. Ekki til stjörnustælar og eins danskur og jarðbundinn og þeir gerast.“

Hér að neðan má heyra viðtalið.

Hér að neðan má sjá stiklu úr kvikmyndinni.


Tengdar fréttir

Frá Cannes í heilt maraþon í Reykjavík

Leikkonan María Thelma er okkar nýjasta stjarna. Hún leikur í kvikmyndinni Arctic með Mads Mikkelsen og ætlar sér að hlaupa heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar UNICEF






Fleiri fréttir

Sjá meira


×