Sjáðu atvikið sem fékk Jürgen Klopp næstum því til að gráta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2019 09:30 Mo Salah réttir Bobby Firmino boltann. Skjámynd/Youtube/Inside Anfield
Liverpoool endaði árið 2018 með 5-1 stórsigri á Arsenal á Anfield og nú er hægt að sjá hvernig leikurinn gekk fyrir sig á bak við tjöldin. Inside Anfield hefur nú birt skemmtilegt myndband inn á Youtube vefnum sem sýnir svipmyndir frá þessum leikdegi á heimavelli Liverpool liðsins sem jók forskot sitt á toppnum með þessum stórsigri. Eins og venjan er farið yfir leikinn frá öðrum sjónarhornum en í hinni hefðbundnu sjónvarpsútsendingu og þá fá áhorfendur mikið að fylgjast með leikmönnum í leikmannagöngunum sem er alltaf mjög fróðlegt. Brasilíumaðurinn Roberto Firmino skoraði þrennu í leiknum, tvö þau fyrstu með 90 sekúndna millibili eftir að Arsenal komst í 1-0 í upphafi leiks en það þriðja skoraði hann úr vítaspyrnu í seinni hálfleik. Egyptinn Mohamed Salah er vítaskytta Liverpool þegar James Milner er ekki að spila og hann hefði að öllu eðlilegu átt að taka þetta víti. Roberto Firmino hafði aldrei skorað þrennu fyrir Liverpool en Mo Salah ákvað að rétta honum boltann og leyfa Brassanum að gulltryggja þrennuna. „Mo Salah leyfði Bobby [Firmino] að taka vítið og ég fór næstum því að gráta því við vitum öll hvað Mo langar mikið að skora mörk. Þetta var mjög falleg stund. Jólin voru búin en ekki hjá strákunum,“ sagði Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, eftir leikinn. Það má einmitt sjá það í myndbandinu þegar Mo Salah réttir Roberto Firmino boltann og leyfir honum að taka vítið. Myndbandið hjá Inside Anfield má sjá hér fyrir neðan. Mo Salah nær í boltann þegar Liverpool fær vítið og labbar í átt að vítapunktinum. Hann afhendir Firmino síðan boltann með bros á vör og stuðningsmenn Liverpool fagna líka vel. Brasilíumaðurinn geislar af gleði þegar hann tekur við boltanum og var aldrei að fara að klikka á vítinu. Allt þetta má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan en atvikið með vítið hefst eftir tíu mínútur í því. Við mælum samt með því að horfa á allt myndbandið.
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira