Sigraði krabbameinið og er nú komin til Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2019 16:30 Ann-Katrin Berger og Emma Hayes. Mynd/Hemasíða Chelseafc
Þjóðverjinn Ann-Katrin Berger er nýjasti leikmaður Chelsea en markvörðurinn skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning í dag. Berger kemur til Chelsea FC Women frá Birmingham City Women en hún var valin í úrvalsliði ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Ann-Katrin Berger er 28 ára gömul og spilaði með Birmingham í tvö og hálft ár. Hún hafnaði tilboði um að vera áfram hjá Birmingham en flutti sig frekar suður til London.Ann-Katrin Berger recovered from cancer to make the PFA Team of the Year. Now she's signed for Chelsea Women https://t.co/frD9LeCrmHpic.twitter.com/nFSrAyLFtc — BBC Sport (@BBCSport) January 4, 2019 Ann-Katrin Berger sigraðist á krabbameini í skjaldkirtli en hún fór í aðgerð í nóvember 2017. Hún snéri aftur í febrúar og vann sér sæti í liði ársins. „Þetta er nýtt fyrir mig. Ég hlakka til að spila fyrir eitt af bestu félögunum í heimi,“ sagði Ann-Katrin Berger. Emma Hayes, stjóri Chelsea, er ánægð með liðstyrkinn. „Hún hefur verið besti markvörður deildarinnar undanfarin tvö ár og þá hefur hún spilað bæði í Frakklandi og í Þýskalandi. Hún hefur safnað sér mikilli reynslu og er tilbúinn til að spila fyrir Chelsea,“ sagði Emma Hayes.See you at Kingsmeadow on Sunday, @Berger_Ann! Who is coming along to say hello? pic.twitter.com/AypZzWMr6k — Chelsea FC Women (@ChelseaFCW) January 4, 2019Lið Birmingham og Chelsea eru með jafnmörg stig í töflunni en Chelsea er með betri markatölu og situr því í þriðja sætinu. Ann-Katrin Berger verður liðsfélagi Maríu Þórisdóttur hjá Chelsea og mun berjast um sætið í liðinu við sænska landsliðsmarkvörðinn Hedvig Lindahl. Berger varð þýskur meistari með Margréti Láru Viðarsdóttur hjá Turbine Potsdam árið 2012. Frá Potsdam fór hún til Paris Saint-Germain og svo til Birmingham. Berger var fyrst valin í þýska landsliðið í nóvember síðastliðnum en á enn eftir að spila landsleik.
Enski boltinn Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Sport Fleiri fréttir Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Sjá meira