Sport

Dag­skráin í dag: Bónus-deildin, Extra­leikar, Lokasóknin og Arsenal

Sindri Sverrisson skrifar
Tommi og Andri halda áfram keppni í Extraleikunum í kvöld.
Tommi og Andri halda áfram keppni í Extraleikunum í kvöld. Sýn Sport

Körfuboltin er í aðalhlutverki á sportrásum Sýnar í kvöld en þar má einnig finna leik hjá Englandsmeisturum Arsenal í enska deildabikarnum í fótbolta.

Þrír leikir eru í beinni útsendingu í Bónus-deild kvenna í körfubolta klukkan 19:15. Keflavík tekur á móti Stjörnunni á Sýn Sport Ísland, Haukar mæta KR á Sýn Sport Ísland 2 og loks mætast Ármann og Njarðvík á Sýn Sport Ísland 3.

Eftir leikina er svo Körfuboltakvöld Extra á Sýn Sport Ísland klukkan 21:10 þar sem meðal annars verður hægt að sjá þá Tómas Steindórsson og Andra Má Eggertsson, Nablann, keppa í Extraleikunum vinsælu.

Lokasóknin er á sínum stað á Sýn Sport klukkan 20 þar sem farið verður yfir málin í NFL-deildinni en á sama tíma er bein útsending frá leik í enska deildabikarnum í fótbolta þar sem Arsenal sækir D-deildarlið Fleetwood heim.

Allar upplýsingar um beinar útsendingar Sýnar má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×