Southgate orðaður við Manchester United Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. janúar 2019 11:00 Southgate hefur gert frábæra hluti með enska landsliðið vísir/getty
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, sé á óskalista forráðamanna Manchester United sem næsti framtíðarstjóri liðsins. Jose Mourinho var rekinn rétt fyrir jól og var þá gefið út að United myndi ráða bráðabirgðastjóra út tímabilið og á meðan yrði farið vandlega að leit að nýjum framtíðarstjóra. Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær var ráðinn inn sem bráðabirgðastjóri. Samkvæmt frétt Sky hefur United ekki haft samband við enska knattspyrnusambandið um málið en leikstíll Southgate og hvernig hann vinnur með unga leikmenn hefur sett hann á óskalista félagsins. Southgate skrifaði fyrr í vetur undir framlengingu á samningi sínum við enska knattspyrnusambandið og er hann nú með samning út HM 2022 í Katar. Southgate stýrði Englendingum til undanúrslita á HM í Rússlandi í sumar, besta árangri Englands í áraraðir. Þá vann liðið riðil sinn í A-deild Þjóðadeildarinnar í haust og spilar í úrslitakeppni hennar í júní. Southgate hefur aðeins þjálfað félagslið einu sinni á ferlinum, hann var stjóri Middlesbrough á árunum 2006-2009. Mauricio Pochettino hefur verið sagður efstur á óskalista Manchester United en Daily Mail segir forráðamenn United óttast að Argentínumaðurinn ætli sér að halda áfram hjá Tottenham og séu því farnir að horfa annað. Þá er Zinedine Zidane einnig á óskalista United, sem og Diego Smeone, þjálfari Atletico Madrid, samkvæmt heimildum The Mirror. Solskjær hefur einnig lýst því yfir að hann hafi áhuga á að halda áfram með liðið til framtíðar.
Enski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Sjá meira