„Í einhverju öðru landi fengi Arsenal heimaleikjabann fyrir svona“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2018 09:00 Dele Alli sýnir hver sé staðan eftir að hafa fengið flösku í sig. Vísir/Getty
Lundúnalögreglan hefur hafið rannsókn eftir að flösku var hent í enskan landsliðsmann í liði Tottenham á Emirates leikvanginum í gærkvöldi en atvikið varð í leik nágrannanna Tottenham og Arsenal í enska deildabikarnum. Tottenham vann leikinn 2-0 og komst í undanúrslit keppninnar. Dele Alli, leikmaður Tottenham, lenti í því að fá plastflösku í hausinn í leiknum. Flaskan kom úr hópi áhorfenda. Lögreglan vinnur nú með fólki hjá Arsenal til að komast að því hver hafi hent flöskunni í Dele Alli. Atvikið varð á 73. mínútu leiksins þegar Dele Alli var að taka innkast við hliðarlínuna. Dele Alli brást við með því að sýna áhorfendum hver staðan var í leiknum en hún var þá orðin 2-0 fyrir Tottenham liðið. „Í einhverju öðru landi myndu þeir kannski loka leikvanginum í nokkra leiki,“ sagði Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham um atvikið eftir leikinn. Það eru þó ekki miklar líkur á því að Arsenal verði dæmt í heimaleikjabann.Police are investigating an incident that saw Tottenham's Dele Alli struck on the head by a plastic bottle. More; https://t.co/emj0lyIH7epic.twitter.com/mBGuTIaWR4 — BBC Sport (@BBCSport) December 20, 2018„Við erum heppin að þetta er ekki mikið vandamál en fólk þarf að passa sig. Við verðum að forðast svona atvik en sumt fólk hegðar sér mjög illa,“ sagði Pochettino. Dele Alli hafði áður skorað seinna mark Tottenham og komið sínu liði í frábær mál. Þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem kemur upp svona mál í leikjum liðanna tveggja. Í deildarleik liðanna á sama velli fyrr í þessum mánuði var bananahýði hent í átt að Pierre-Emerick Aubameyang, framherja Arsenal. Stuðningsmaður Tottenham sem henti bananahýðinu fékk fjögurra ára bann.
Enski boltinn Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira