Fyrrum leikmaður Víkings hetja Leeds í uppbótartíma tvisvar sinnum á þremur dögum Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. desember 2018 10:30 Kemar Roofe fagnar markinu á móti Aston Villa. getty/Nathan Stirk
Kemar Roofe er vinsælasti leikmaður enska B-deildarliðsins Leeds þessa dagana en hann gerði jólin heldur betur gleðileg fyrir stuðningsmenn liðsins. Roofe skaut Leeds nefnilega á toppinn með þremur mörkum í uppbótartíma í tveimur leikjum í röð með þriggja daga millibili er Leeds lagði Aston Villa, 3-2, á Þorláksmessu og svo Blackburn á öðrum degi jóla, 3-2. Leeds átti magnaða endurkomu á móti Aston Villa í seinni hálfleik eftir að vera 2-0 undir í hálfleik en liðið jafnaði leikinn með tveimur mörkum á 56. mínútu og 61. mínútu áður en Kemar Roofe sendi Leeds-stuðningsmenn glaða inn í jólin með sigurmarki á fimmtu mínútu í uppbótartíma. Roofe gerði svo enn betur í gær þegar að Leeds var við það að tapa leiknum á móti Blackburn. Það fékk á sig mark á 90. mínútu og lenti 2-1 undir en Roofe jafnaði metin á fyrstu mínútu uppbótartímans og skoraði sigurmarkið tæpum fjórum mínútum eftir venjulegan leiktíma.90' NSDAJDNKAHSDBAKSBDAHSDBAJSDBJHASBDH!!! GGGGGOOOAAAAALLLLLL!!!! JADNSKJABSDAHSDBKASDHB!!! KEMAR HAS SCORED!!! WHAT A GAME!!!3-2 | #LEEBLA pic.twitter.com/vZAHHsue8z— Leeds United (@LUFC) December 26, 2018 Þrjú mörk frá Roofe í uppbótartíma í tveimur leikjum og Leeds, sem hefur ekki spilað í úrvalsdeildinni í fjórtán ár, gæti verið á leiðinni aftur upp í deild þeirra bestu. Það er allavega á toppnum núna. Kemar Roofe er merkilegur piltur en hann fæddist í Walsall árið 1993 og er því 25 ára. Hann kom upp í gegnum akademíu West Bromwich en var lánaður nokkrum sinnum þaðan, fyrst til Víkings í Pepsi-deildinni árið 2011. Roofe spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik á ferlinum á Íslandi 26. maí árið 2011 og skoraði í 2-0 bikarsigri Víkinga gegn KV í Vesturbænum. Hann spilaði tvo í tveimur jafnteflisleikjum Víkings í Pepsi-deildinni á móti FH og Grindavík áður en að hann fór aftur heim. Þessi markheppni framherji, sem er búinn að skora þrettán mörk í 18 leikjum fyrir Leeds á tímabilinu, kom frá Oxford árið 2016 eftir að vera kjörinn besti leikmaður ensku D-deildarinnar það árið. Hann hefur jafnt og þétt unnið sig upp ensku deildirnar og er nú einn besti leikmaður B-deildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Sjá meira