Leeds tapaði á heimavelli - Jón Daði og Birkir byrjuðu á bekknum Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 29. desember 2018 17:13 Birkir í baráttunni í dag vísir/getty
Leeds tapaði óvænt á heimavelli í Championship deildinni gegn Hull í dag. Jón Daði Böðvarsson og Birkir Bjarnason byrjuðu báðir á bekknum hjá sínum liðum en komu inn á í síðari hálfleik. Jón Daði byrjaði á bekknum hjá Reading sem heimsótti QPR. Jón Daði kom inn á á 82. mínútu leiksins en hann náði ekki að setja mark sitt á leikinn, líkt og aðrir leikmenn liðanna, en leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Reading er í næst neðsta sæti deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæti. Birkir Bjarnason byrjaði einnig á bekknum hjá Aston Villa sem heimsótti Preston. Tammy Abraham kom Aston Villa yfir undir lok fyrri hálfleiks en Ahmed El Mohamady, leikmaður Aston Villa varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar um klukkutími var liðinn af leiknum. Birkir kom inn á 75. mínútu og fékk fínt færi til þess að skora sigurmarkið en inn fór boltinn ekki. Lokatölur 1-1. Asston Villa er í 9. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá umspilssæti. Topplið Leeds náði ekki að halda áfram góðu gengi sínu þegar liðið fékk Hull í heimsókn. Jarrod Bowen kom Hull yfir á 25. mínútu leiksins. Bowen var svo aftur á ferðinni á 58. mínútu þegar hann tvöfaldaði forystuna. Leeds náði ekki að koma til baka líkt og í síðustu leikjum sínum. Þrátt fyrir tapið er Leeds enn á toppi deildarinnar. Norwich sem var í öðru sæti fyrir umferðina fékk Derby í heimsókn en Derby er einnig í toppbaráttu. Ben Godfrey kom heimamönnum í Norwich yfir á 25. mínútu. Skömmu síðar tvöfaldaði Teemu Pukki forystu heimamanna. Derby tókst hins vegar að koma til baka og jafna leikinn áður en flautað var til hálfleiks. Fikayo Tomori og Mason Mount skoruðu mörk Derby. Teemu Pukki var aftur á ferðinni og kom Norwich aftur yfir á 81. mínútu. Skömmu síðar þurfti dómari leiksins að flauta leikinn af vegna þess að flóðljósin á heimavelli Norwich hættu að virka og gátu leikmennirnir ekki spilað í myrkrinu, þrátt fyrir að stuðningsmenn Norwich vildu það. Skömmu síðar hélt leikurinn áfram. Pásan reyndist Derby mönnum afar vel. Florian Jozefzoon kom Derby yfir skömmu eftir að leikurinn hófst að nýju. Jack Morriot skoraði svo sigurmark Derby í uppbótartíma leiksins. Lokatölur 4-3 fyrir Derby í markaleik. Norwich er í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum frá toppliði Leeds. Derby er í 6. sæti og síðasta umspilssætinu í deildinni. Derby er með fjögurra stiga forskot á Birmingham og QPR sem eru í 7. og 8. sæti. Öll úrslit Championship deildarinnar má finna hér: Birmingham 0-0 Brentford Bolton 0-0 Stoke Bristol City 1-0 Rotherham Leeds 0-2 Hull Middlesbrough 2-0 Ipswich Milwall 1-0 Nottingham Forest Norwich 3-3 Derby Preston 1-1 Aston Villa QPR 0-0 Reading Sheffield United 3-0 Blackburn Swansea 2-2 Wigan WBA 1-1 Sheffield Wednesday
Enski boltinn Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Sjá meira