Tottenham sló út Arsenal og Chelsea marði Bournemouth Anton Ingi Leifsson skrifar 19. desember 2018 21:45 Heung-Song Min og Dele Alli fagna. vísir/getty Tottenham og Chelsea tryggðu sig inn í undanúrslit enska deildarbikarsins í kvöld eftir sigra á Arsenal og Bournemouth í leikjum kvöldsins. Það var Lundúnaslagur af bestu gerð er Tottenham heimsótti Arsenal á Emirates-leikvanginn en ekki fyrir alls löngu vann Arsenal sigur í uppgjöri þessara liða í fjörugum leik. Tottenham náði forystunni eftir tuttugu mínútna leik en eftir afar smekklega sendingu Dele Alli var það Soung-Heung Min sem kom boltanum framhjá Petr Cech og í netið. 1-0 í leikhlé. Aftur var það Dele Alli sem var viðloðandi næsta mark Tottenham sem kom á 59. mínútu. Harry Kane lagði þá boltann á hann og Dele Alli kláraði færið stórskotlega. Lokatölur 2-0 sigur Tottenham. Chelsea kláraði Bournemouth á heimavelli en það tók sinn tíma. Markalaust var í hálfleik. Chelsea var mikið með boltann en gestirnir frá Bournemouth sóttu með hættulegum hröðum skyndisóknum. Í síðari hálfleik var Eden Hazard og Pedro sendir á vettvang en þeir afgreiddu leikinn. Pedro lagði boltann á Belgann sem skaut skoti, sem hafði viðkomu í varnarmanni Bournemouth og í netið. Lokatölur 1-0. Það verða því Manchester City, Burton Albion, Chelsea og Tottenham sem eru komin í undanúrslitin.
Tottenham og Chelsea tryggðu sig inn í undanúrslit enska deildarbikarsins í kvöld eftir sigra á Arsenal og Bournemouth í leikjum kvöldsins. Það var Lundúnaslagur af bestu gerð er Tottenham heimsótti Arsenal á Emirates-leikvanginn en ekki fyrir alls löngu vann Arsenal sigur í uppgjöri þessara liða í fjörugum leik. Tottenham náði forystunni eftir tuttugu mínútna leik en eftir afar smekklega sendingu Dele Alli var það Soung-Heung Min sem kom boltanum framhjá Petr Cech og í netið. 1-0 í leikhlé. Aftur var það Dele Alli sem var viðloðandi næsta mark Tottenham sem kom á 59. mínútu. Harry Kane lagði þá boltann á hann og Dele Alli kláraði færið stórskotlega. Lokatölur 2-0 sigur Tottenham. Chelsea kláraði Bournemouth á heimavelli en það tók sinn tíma. Markalaust var í hálfleik. Chelsea var mikið með boltann en gestirnir frá Bournemouth sóttu með hættulegum hröðum skyndisóknum. Í síðari hálfleik var Eden Hazard og Pedro sendir á vettvang en þeir afgreiddu leikinn. Pedro lagði boltann á Belgann sem skaut skoti, sem hafði viðkomu í varnarmanni Bournemouth og í netið. Lokatölur 1-0. Það verða því Manchester City, Burton Albion, Chelsea og Tottenham sem eru komin í undanúrslitin.
Enski boltinn Mest lesið Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Sport Þolinmæðin á þrotum: „Gerist aldrei neitt“ Sport „Day of fun“ fól ekki í sér áfengi hjá Jóni Erik Sport Sagðar hafa hætt saman en mætast í úrslitaleik í kvöld Sport „Ef við viljum fá Haaland verðum við að fá Messi aftur“ Fótbolti Skíðasambandinu fannst Halldór of slæm fyrirmynd Sport LaMelo Ball lenti í bílslysi Körfubolti Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum Enski boltinn Hundur Lindsey Vonn dó daginn eftir að hún fótbrotnaði á ÓL Sport „Stormur í vatnsglasi“ Formúla 1 Fleiri fréttir Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Saka verður sá launahæsti Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Sjá meira