Upphitun: Gylfi getur skorað í þriðja leiknum í röð og stórleikur á Anfield Anton Ingi Leifsson skrifar 29. desember 2018 08:00 Gylfi eftir vítaspyrnumarkið gegn Burnley. vísir/getty
Enski boltinn heldur áfram að rúlla yfir jólahátíðirnar og það eru frábærir leikir um helgina er tuttugasta umferðin verður spiluð. Á morgun eru sex leikir en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan þrjú er þeir heimsækja Brighton. Gylfi hefur skorað í síðustu tveimur leikjum Everton sem vann stórsigur á Burnley, 5-1, á öðrum degi jóla eftir 6-2 skell gegn Tottenham í umferðinni þar á undan. Tottenham mætir Wolves einnig klukkan þrjú en stórleikur helgarinnar er klukkan 17.30 annað kvöld er Liverpool og Arsenal mætast. Liverpool er komið með sex stiga forskot á toppi deildarinnar og spurningin er hversu mikið það verður eftir helgina. Á sunnudaginn eru svo fjórir leikir. Chelsea heimsækir Crystal Palace í hádeginu og Jóhann Berg Guðmundsson og félagar fá funheita West Ham menn í heimsókn. Manchester City hefur verið að hiksta í síðustu tveimur leikjum en liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð. Þeir þurfa ekkert annað en þrjú stig er þeir fara á St. Mary's og mæta Southampton á sunnudag. Síðasti leikur helgarinnar er svo klukkan 16.30 á sunnudaginn er Ole Gunnar Solskjær stýrir Manchester Utd í þriðja sinn. Þeir fá Bournemouth í heimsókn og Norðmaðurinn vonast eftir þriðja sigrinum í þremur leikjum.Leikir helgarinnar:Laugardagur: 15.00 Brighton - Everton (Í beinni á Stöð 2 Sport) 15.00 Fulham - Huddersfield 15.00 Leicester - Cardiff 15.00 Tottenham - Wolves 15.00 Watford - Newcastle 17.30 Liverpool - Arsenal (Í beinni á Stöð 2 Sport)Sunnudagur: 12.00 Crystal Palace - Chelsea (Í beinni á Stöð 2 Sport) 14.15 Burnley - West Ham 14.15 Southampton - Manchester City (Í beinni á Stöð 2 Sport) 16.30 Manchester United - Bournemouth (Í beinni á Stöð 2 Sport)Klippa: Premier League Matchweek 20 Preview
Fótbolti Mest lesið Smyglaði sér inn í Ólympíuþorpið til að styðja kærustu sína Sport Hundur Lindsey Vonn dó daginn eftir að hún fótbrotnaði á ÓL Sport „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ Enski boltinn Sagðar hafa hætt saman en mætast í úrslitaleik í kvöld Sport „Okkur var refsað fyrir það“ Enski boltinn „Leyfa morðingjum og vitorðsmönnum þeirra að keppa á Ólympíumótinu“ Sport Skíðasambandinu fannst Halldór of slæm fyrirmynd Sport Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Íslenski boltinn Gamli Valsarinn í stuði þegar Bodö skellti Inter í Meistaradeildinni Fótbolti Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Enski boltinn Fleiri fréttir „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Saka verður sá launahæsti Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Sjá meira