Wolves upp fyrir Everton með sigri Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. desember 2018 17:09 Leikmenn Wolves fagna marki vísir/getty
Wolves fór upp fyrir Everton í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Bournemouth. Newcastle og Crystal Palace nældu sér í mikilvæg stig. Nýliðar Wolves eru að gera gríðarlega gott mót í ensku úrvalsdeildinni og eru eftir þá leiki sem búnir eru í 17. umferðinni einu stigi á eftir Manchester United, sem þó á leik til góða. Wolves fékk lið Bournemouth í heimsókn. Bournemouth byrjaði tímabilið vel en hefur gengið hræðilega að undan förnu og fékk skell gegn Liverpool í síðasta leik. Raul Jimenez kom Wolves yfir snemma leiks og þurfti hann að hafa eins lítið fyrir því og hægt er. Diogo Jota átti hlaup inn á teiginn, framhjá tveimur varnarmönnum og skaut í átt að marki. Skotið fór af varnarmanni Wolves og í átt að Jimenez sem var aleinn og hamraði knettinum í netið af stuttu færi, markvörðurinn gat ekkert gert eftir að snertingin við varnarmanninn breytti stefnu boltans. Bæði lið áttu sín færi en annað mark leiksins kom ekki fyrr en í lok uppbótartímans. Varamaðurinn Ivan Cavaleiro skoraði fyrir Wolves og tryggði þeim 2-0 sigur. Crystal Palace og Newcastle unnu bæði mikilvæga sigra í fallbaráttunni. Palace hafði betur gegn Leicester þökk sé glæsimarki frá Luka Milivojevic í lok fyrri hálfleiks í leik sem annars var ekki mikið fyrir augað. Jamie Vardy átti gott færi fyrir Leicester í seinni hálfleik en Vicente Guaita varði vel. Salomon Rondon tryggði Newcastle sigurinn gegn Huddersfield með eina marki leiksins. Heimamenn í Huddersfield voru þó sterkari aðilinn í leiknum og voru miklu meira með boltann en það skilaði ekki stigi fyrir þá í dag.
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira