Innlent

Játar manndráp af gáleysi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Slysið varð á Öxnadalsheiði þann 24. júní í fyrra. Myndin er úr Öxnadal en tengist fréttinni að öðru leyti ekki.
Slysið varð á Öxnadalsheiði þann 24. júní í fyrra. Myndin er úr Öxnadal en tengist fréttinni að öðru leyti ekki. Vísir/Vilhelm
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur játað að hafa með gáleysi orðið erlendum karlmanni á sjötugsaldri að bana á Öxnadalsheiði í júní í fyrra. Maðurinn ók ónýtum bíl sínum á ógnarhraða undir áhrifum lyfja og varð valdur að þriggja bíla árekstri þar sem einn týndi lífi og annar slasaðist.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra á Akureyri á föstudaginn og játaði maðurinn brot sitt. 

Áreksturinn varð með þeim hætti að maðurinn ók aftan á bíl sem ekið var í sömu átt með þeim afleiðingum að fremri bíllinn kastaðist framan á smárútu sem ekið var í gagnstæða átt. Ökumaður bifreiðarinnar, erlendur karlmaður á sjötugsaldri, lést nær samstundis. Kona á sjötugsaldri, farþegi í smárútunni, hlaut afrifubrot á nærhluta nærkjúku þumals.

Maðurinn virðist hafa verið á allt að 162 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Maðurinn var á ökutæki sem ekki var í notkunarhæfu ástandi vegna ástands hemla í framhjóli, þunnra hemlaklossa í afturhjólum, ryðmyndunar í helmadisk að aftan, ónýts höggdeyfis og vanstilltra lega. Þá var hann án lögboðinna ökuljósa.

Í blóðsýni úr ákærða mældust deyfandi lyf. Annars vegar 10 ng/ml af alprazólam og 0,9 µg/ml af oxazepam.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×