Hafnarfjarðarbær fyrst sveitarfélaga á Íslandi vottað jafnlaunamerki frá velferðarráðuneytinu Ingvar Þór Björnsson skrifar 13. ágúst 2017 11:36 Í fréttatilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að markmiðið með innleiðingunni sé að koma á og viðhalda launajafnrétti hjá Hafnarfjarðarbæ. Vísir/GVA
Hafnafjarðarbær er fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að fá vottað jafnlaunamerki frá velferðarráðuneytinu en merkið staðfestir að atvinnurekendur hafi komið sér upp ferli sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir í launamálum feli hvorki í sér kynbundna mismunun eða mismunun af öðrum toga. Í fréttatilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að markmiðið með innleiðingunni sé að koma á og viðhalda launajafnrétti hjá Hafnarfjarðarbæ og uppfylla skyldur atvinnurekenda um að tryggja jafnan rétt kvenna og karla, greiða þeim jöfn laun og tryggja að þau njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. „Við erum gríðarlega stolt af því að vera fyrsta sveitarfélag landsins að fá vottað jafnlaunakerfi. Það var heilmikið átak að fara í gegnum þessa vinnu og við erum stolt af og þakklát starfsfólki Ráðhússins fyrir hvað vinnan hefur gengið vel,“ sagði Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í tilefni innleiðingarinnar. „Fyrir utan hið augljósa, að vottunin tryggir jöfn laun óháð kyni, þá er hún um leið verkfæri til að viðhalda góðum aga við þessar ákvarðanir,“ bætir Guðlaug við. Starfshópurinn sem stýrði innleiðingunni var skipaður af Andra Ómarssyni verkefnastjóra, Berglindi Guðrúnu Bergþórsdóttur mannauðsstjóra, Haraldi Eggertssyni verkefnastjóra og Lúvísu Sigurðardóttur gæðastjóra.Fyrsta stofnunin sem hlaut merkið var embætti tollstjóra.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Innlent Fleiri fréttir Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Sjá meira