Segir fyrirslátt ráðherra bitna á aðstöðu hælisleitenda Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 16. maí 2017 13:15 Kolbeini hugnast ekki afstaða Sigríðar Á Andersen, dómsmálaráðherra, sem birtist í svari við fyrirspurn hans. Mynd/samsett „
Það er eins og það sé búið að sætta sig við það að þessi hópur eigi ekki að lifa við mannsæmandi aðstæður,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri Grænna, um svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn hans um aðbúnað fólks sem sækir hér um alþjóðlega vernd. Á undanförnum fimm árum hefur einn umsækjandi um vernd látist á meðan málsmeðferð stóð og tveir til viðbótar létust eftir að málsmeðferð lauk.Þetta kemur fram í svari Sigríðar Á Andersen dómsmálaráðherra við fyrirspurn Kolbeins. Í fyrirspurninni beinir Kolbeinn því til ráðherra hvernig móttöku einstaklinga í viðkvæmri stöðu sé háttað. Í svari við fyrirspurninni kemur meðal annars fram að Útlendingastofnun hefur ekki yfir að ráða sérstöku búsetuúrræði fyrir viðkvæma einstaklinga. „Eftir megni sé reynt að tryggja hverjum og einum búsetuúrræði eftir þörfum í þeim úrræðum sem stofnunin hefur yfir að ráða, eða að þeir fá að dvelja lengur í móttökuúrræðinu í Bæjarhrauni í Hafnarfirði svo betur sé hægt að fylgjast með þeim,“ segir þar.Í fyrra þurfti að koma upp tímabundnu gistiskýli fyrir hælisleitendur á Krókhálsi þar sem lögregluskólinn var áður til húsa. Umsóknir um vernd voru orðnar það margar.Þá kemur fram í svarinu að dómsmálaráðherra sé ekki mótfallinn banni Útlendingastofnunar við heimsóknum til hælisleitenda. „Þetta slær mig þannig að lýsingin á húsakostunum er raunsönn en það sem mér þykir verra er afstaða dómsmálaráðherra til þess,“ segir Kolbeinn. „Hér segir í svarinu að í búsetuúrræðum búi fólk þröngt, tveir eða fleiri í herbergi og ekki er til aðstaða til þess að taka á móti gestum og mér þykir eðlilegt að álykta svo að það þurfi að bæta búsetuúrræðin og húsakostinn þannig að það sé hægt að lifa mannsæmandi lífi og fá til sín gesti ef maður vill en dómsmálaráðherra virðist draga þá ályktun að húsakostinum sé ekki hægt að breyta og því þurfi að halda í þessa reglu áfram.“ „Það á að vera þessu fólki sem þarna býr í sjálfsvald sett hvort það fær til sín gesti eða ekki,“ segir Kolbeinn. „Það að eitthvað eins og þröngur húsakostur sé tilgreindur sem ástæða fyrir því þykir mér bagalegt og svo að því sé bætt við að þetta sé gert með hagsmuni þeirra í huga. Mér finnst þetta fyrirsláttur og lýsa ákveðinni nauðhyggju í þessum málaflokki,“ segir hann.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira