Facebook vill uppræta hrelliklám með nýrri tækni Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 5. apríl 2017 22:30 Refsað hefur verið hér á landi fyrir hrelliklám þótt ekki fari fyrir ákvæðum í almennum hegningarlögum sem skilgreina verknaðinn sérstaklega. vísir/getty
Facebook hefur þróað nýja tækni sem er ætlað að uppræta hrelliklám. The Guardian greinir frá. Tæknin mun gera notendum kleift að tilkynna „innilegar“ myndir sem birtar eru á Facebook án samþykkis til teymis sem skoðar myndina og fjarlægir hana ef tilefni þykir til. Facebook mun einnig nota tækni sem auðveldar miðlinum að stöðva útbreiðslu mynda sem dreift hefur verið í hefndarskyni. Með þeirri tækni eru myndir á Facebook bornar saman við mynd sem vitað er að dreift var í særandi tilgangi. Sú tækni er ekki ólík svokallaðri PhotoDNA myndgreiningu sem er víða notuð til þess að sporna gegn dreifingu barnakláms. „Facebook er í kjörinni stöðu til þess að koma í veg fyrir tjón af þessu tagi,“ sagði Antigone Davis, yfirmaður almannaöryggisdeildar samfélagsmiðilsins.Hefndarklám er víða refsivert Umræða um hefndarklám hefur aukist undanfarin ár og nú þegar hafa 35 ríki Bandaríkjanna innleitt löggjöf sem gera verknaðinn refsiverðan. Árið 2015 var lagði Björt framtíð fram frumvarp á Alþingi sem fólst í því að bæta við ákvæðum í almenn hegningarlög sem gerðu hrelliklám að refsiverðu athæfi. Var lagt til að hámarksrefsing skyldi vera tveggja ára fangelsi. Þrátt fyrir að frumvarpið hafi ekki orðið að lögum hefur Hæstiréttur sakfellt gerendur hrellikláms en þá á grundvelli annarra lagaákvæða. Laura Higgins, stofnandi hjálparlínu fyrir fórnarlömb hrellikláms, sagði í samtali við BBC að hún fagnaði framtaki Facebook. Hún fullyrti að samfélagsmiðlar væru sannarlega vettvangur fyrir fólk til þess að ná fram hefndum. „Ein helsta áskorunin hefur verið að koma í veg fyrir að fólk geti endurbirt slíkt efni,“ sagði hún.
Tengdar fréttir Barátta Emmu gegn hefndarklámi Danska baráttukonan Emma Holten segir eflingu lögreglunnar lykilatriði í baráttunni gegn hefndarklámi. Lögreglan þurfi að nota þau úrræði sem hún hefur. Hún fær enn grófar hótanir sex árum eftir að myndum af henni var dreift. 15. október 2016 07:00 Stafrænt kynferðisofbeldi: „Það er eins og einhver hafi tekið leyndarmálin þín og sýnt þau öllum“ Stafrænt kynferðisofbeldi, ólögmæt dreifing kynferðislegs myndefnis, hefur verið mikið milli tannanna á fólki síðustu daga. 23. febrúar 2017 10:45 14 ára stúlka kærir Facebook vegna hefndarkláms Lögfræðingar stúlkunar segja að maður, sem einnig hefur verið kærður af stúlkunni, hafi ítrekað birt nektarmynd af stúlkunni á samfélagsmiðlinum Facebook til þess að hefna sín á henni. 13. september 2016 14:40 Stafrænt kynferðisofbeldi: Notast við refsiákvæði sem var upphaflega ætlað að ná böndum yfir flassara Dómsmálaráðherra segir ekki vera þörf á því að skilgreina slíkt ofbeldi og varahéraðssaksóknari tekur í sama streng. Yfirmaður kynferðisbrotadeildar segir málin afar vandmeðfarin. 3. apríl 2017 08:45 Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira
Barátta Emmu gegn hefndarklámi Danska baráttukonan Emma Holten segir eflingu lögreglunnar lykilatriði í baráttunni gegn hefndarklámi. Lögreglan þurfi að nota þau úrræði sem hún hefur. Hún fær enn grófar hótanir sex árum eftir að myndum af henni var dreift. 15. október 2016 07:00
Stafrænt kynferðisofbeldi: „Það er eins og einhver hafi tekið leyndarmálin þín og sýnt þau öllum“ Stafrænt kynferðisofbeldi, ólögmæt dreifing kynferðislegs myndefnis, hefur verið mikið milli tannanna á fólki síðustu daga. 23. febrúar 2017 10:45
14 ára stúlka kærir Facebook vegna hefndarkláms Lögfræðingar stúlkunar segja að maður, sem einnig hefur verið kærður af stúlkunni, hafi ítrekað birt nektarmynd af stúlkunni á samfélagsmiðlinum Facebook til þess að hefna sín á henni. 13. september 2016 14:40
Stafrænt kynferðisofbeldi: Notast við refsiákvæði sem var upphaflega ætlað að ná böndum yfir flassara Dómsmálaráðherra segir ekki vera þörf á því að skilgreina slíkt ofbeldi og varahéraðssaksóknari tekur í sama streng. Yfirmaður kynferðisbrotadeildar segir málin afar vandmeðfarin. 3. apríl 2017 08:45