Þrír hundar í vinnu hjá Sóltúni Sæunn Gísladóttir skrifar 22. júlí 2017 11:34 Jóhanna ásamt Mónu Lísa og föður sínum Sævari sem er íbúi Sóltúns. Vísir/Vilhelm
Hundurinn Monsa, fimm ára Toy Poodle, fékk í vikunni starfsmannakort frá hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Hundurinn sem er í eigu Stefaníu Svavarsdóttur hefur mætt með henni til vinnu í rúmt ár. Monsa er þriðji hundurinn til að fá starfsmannakort, en fyrir eru chihuahua-tíkurnar Móna Lísa og Sunna Dís sem mæta með eiganda sínum, Jóhönnu Bjarndísi Sævarsdóttur. Hundasamfélagið greindi fyrst frá þessu. „Móna koma til mín á annan á hvítasunnu í fyrra af slæmu heimili og fór fljótlega að koma með mér í vinnuna því ég vildi ekki skilja hana eftir með hinum hundunum. Þetta var upphaflega til að hjálpa henni að treysta fólki,“ segir Jóhanna. Hún er sjúkraliði og verkefnastjóri og hefur unnið á Sóltúni í þrettán ár. „Móna á sér hundakerru sem hún sefur í á morgunfundi, svo lúrir hún á meðan fólk er í baði en svo vekur hún íbúa. Ég hjálpa henni upp í og hún knúsar og kyssir íbúana. Hún tekur þátt í öllu á deildinni, hún labbar milli læranna á fólki og sefur hjá fólkinu,“ segir Jóhanna. Hún segir íbúa fá ofboðslega mikið út úr hundinum. „Fólk sem hefur ekki einu sinni verið almennt fyrir dýr, það lifnar bara við. Það eru margir með Alzheimer og eru ekki kannski mikið fyrir að spjalla en geta setið og hún liggur í fanginu á þeim og þau muna að klappa. Þau sækja í að klappa hundinum.“ Nokkrum mánuðum eftir að Móna fór að fara í heimsókn eignaðist Jóhanna Sunnu Dís sem kom einnig úr slæmum aðstæðum. „Þær skiptast á að koma, þær fá vaktaplan,“ segir hún og hlær. „Sunna labbar hér um og fylgir fólkinu niður ef það er að fara í sjúkraþjálfun eða iðjuþjálfun. Íbúar biðja um að fá hundinn með. Hún fylgir yfirleitt fólkinu í daglegar athafnir.“ „Þeir sem eru með kvíða, það hefur hjálpað þeim ofboðslega að hafa hundana í fanginu og þau gleyma sér og líður miklu betur. Við Móna Lísa unnum hér aðfangadagskvöld það var himneskt. Þetta er oft erfiður tími fyrir aldrað fólk en ég er 100 prósent á því að hún gaf mikið af sér,“ segir Jóhanna að lokum.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fleiri fréttir Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Sjá meira