Sameiningaráform leikskóla á ís vegna manneklu Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. nóvember 2017 06:00 Formaður skóla- og fræðsluráðs segir það algjört forgangsmál að bæta vinnuumhverfið í leikskólum. Öll önnur stefnumótun þurfi að taka mið af því markmiði að við viljum minnka álag, bæta vinnuskilyrði starfsfólks og bæta liðsandann. Fréttablaðið/Vilhelm „
Það er forgangsmál hjá okkur að bæta vinnuumhverfið í leikskólaumhverfinu. Við teljum að það eigi að vera í algjörum forgangi og öll önnur stefnumótun þurfi að taka mið af því markmiði að við viljum minnka álag, bæta vinnuskilyrði starfsfólks og bæta liðsandann. Við teljum að sameiningar séu ekki gott innlegg inn í það við þessar aðstæður. Þess vegna viljum við taka allt slíkt af dagskrá,“ segir Skúli Helgason, formaður skóla- og fræðsluráðs Reykjavíkurborgar. Áformum um sameiningar leikskóla í Rimahverfi í Grafarvogi hefur verið slegið á frest. Tillaga var samþykkt á fundi skóla- og fræðsluráðs um að ráðast ekki í sameiningar við núverandi aðstæður.Skúli HelgasonKjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði til að fundinum að horfið yrði alfarið frá fyrirliggjandi tillögum um sameiningu leikskóla i Reykjavík. Þess í stað verði reynsla metin af þeim leikskólasameiningum sem hafa átt sér stað í borginni frá árinu 2011. Sjálfstæðismenn vilja að úttekt verði gerð á málinu og metið hvaða áhrif sameiningarnar hafa haft á faglegt starf og starfsmannahald í þeim skólum sem þær náðu til. Tillaga Kjartans var ekki afgreidd og við það er hann afar ósáttur. „Ég held að það sé bara verið að fresta þessu við núverandi aðstæður af því að það eru að koma kosningar. Ég held að þau hafi fullan hug á að gera þetta en vilji bara bíða fram yfir kosningar með það,“ segir Kjartan við Fréttablaðið. Hann segir að eðlilegra hefði verið að sín tillaga hefði verið tekin fyrir fyrst þar sem hún gekk lengra. „Almenn fundarsköp fela í sér að sú tillaga sem gengur lengst sé tekin fyrir fyrst, þannig að ef hún er felld geti sá sem þá tillögu flytur stutt þá tillögu sem gengur skemur,“ segir Kjartan. Hjá Reykjavíkurborg hefur verið unnið eftir því verklagi að þegar leikskólastjóri lætur af störfum, yfirleitt út af aldri, þá hafi menn skoðað möguleika á sameiningu leikskóla. Hins vegar hefur engin pólitísk stefna verið mótuð varðandi þetta. „Við vildum draga hreina línu í sandinn og hafa alveg á hreinu að sameiningarmálin eru til skemmri tíma ekki hjálpleg til að draga úr álagi, heldur þvert á móti. Það fylgir því alltaf álag að gera skipulagsbreytingar. Stundum er þetta eitthvað sem menn verða að gera til að hagræða en sem betur fer er fjárhagur borgarinnar það góður að það er ekki knýjandi þörf á svona aðgerðum,“ segir Skúli.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Fleiri fréttir Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Sjá meira