Var boðin lægri mánaðargreiðsla á leiguíbúð í skiptum fyrir kynlíf Helga María Guðmundsdóttir skrifar 26. október 2017 19:00
Íslenskri konu var boðin lægri mánaðargreiðsla á leiguíbúð í skiptum fyrir kynlíf. Málinu hefur verið vísað til lögreglu. Harpa Lind Pálmarsdóttir skildi fyrir fimm mánuðum síðan og fór þá að leita sér að leiguíbúð. Hún fann loks íbúð og hitti leigusalann sem bauð henni samning upp á 180.000 á mánuði.Ítarlega var rætt við Hörpu Lind og fjallað um mál hennar í DV í dag. „Hann var svona að teygja lopann og segir síðan ég komst ekki alveg að því á sunnudaginn en ég er vanur að kaupa mér þjónustu kvenna, sko blíðu kvenna, getur það komið til með að koma upp í leigu,“ segir Harpa. Þegar Harpa neitaði sagði maðurinn að leigan væri þá 180.000 krónur og bætti við að hún hafði væntanlega ekki efni á því. Maðurinn var skýr í sínu máli og vildi lækka leiguna gegn kynlífi. Harpa býr í litlu herbergi hjá vinafólki í Hafnarfirði og segir erfitt að komast inn á leigumarkaðinn þar sem leigan er of há. „Ég bý í þessu herbergi og ef eitthvað er þá hefur það kennt mér að sýna nægjusemi og að vera þakklát með það sem ég hef en ég er 38 ára gömul og á ekki að vera í þessari stöðu,“ segir Harpa Lind. Harpa ætlar ekki ein að skoða íbúðir í framtíðinni og vonar að engin kona sé í það bágri stöðu að hún íhugi slík tilboð. „Það eru konur með börnin sín að lenda á götunni, það vill enginn vera með börnin sín á götunni. Sumir eru orðnir svo örvæntingafullir eða eru ekki á réttum stað í lífinu og koma sér í þetta og hvað svo?“ spyr Harpa. Hún segir sín fyrstu viðbrögð við beiðninni hafa verið að hlæja en síðan áttaði hún sig á alvöru málsins og tilkynnti lögreglu. „Við munum eftir örfáum tilvikum á undanförnum árum, þar sem sambærileg brot hafa borið á góma og við hvetjum fólk til þess að tilkynna til lögreglu ef um ótvíræð brot er að ræða,“ segir Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglu.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Sjá meira