Ekki ökuhæfur vegna veikinda Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. ágúst 2017 06:07 Ökumaðurinn var stöðvaður eftir að hafa valdið tjóni við Sólheima í Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að bregðast við fjöldamörgum umferðartengdum ábendingum í gærkvöldi. Í dagbók lögreglu segir að hið minnsta þrír hafi verið stöðvaðir í umferðinni grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna. Þar af höfðu tveir aldrei öðlast ökuréttindi. Þá var einn ökumaður stöðvaður eftir að hafa valdið tjóni við Sólheima. Var hann færður á lögreglustöð þar sem læknir kom og mat ökumanninn ekki hæfan til að stjórna ökutæki - „þó ekki vegna neyslu heldur vegna veikinda,“ eins og það er orðað í dagbókarfærslunni. Þá fékk lögregla ábendingu um slys við gatnamót Háaleitisbrautar og Miklubrautar, eins og Vísir greindi frá í gærkvöldi. Þar hafði strætisvagn ekið á hjólreiðamann sem fluttur var á slysadeild til aðhlynningar. Ekki er vitað um meiðsl mannsins að svo stöddu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var um alvarlegt slys að ræða. Lögreglan í Mosfellsbæ þurfti að aðstoða ökumann sem velt hafði bifreið sinni á Þingvallavegi við Leirvogsvatn á níunda tímanum í gærkvöld. Ökumaðurinn er talinn hafa misst stjórn á bifreiðinni og var hann fluttur á slysadeild. Hann reyndist óbrotinn en eitthvað marinn. Bifreiðin hefur verið flutt af vettvangi. Þá hrapaði maður í svifvæng til jarðar við Hafrafell og var hann mjög verkjaður þegar lögregla kom á vettvang. Hann var með hjálm en hafði lent á öxlinni og er talið að hann hafi brotið á sér handlegginn. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Sjá meira