Segja Hveragerðisbæ brjóta á rétti sínum og sýna valdníðslu Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. nóvember 2017 07:00 Yfirlitsmynd yfir Hveragerði. Bærinn lætur lögmann sinn um að svara kæru Orteka Partners. Vísir/E. Ól. „
Við förum því vinsamlega fram á að bæjarráð dragi til baka öll áform um afturköllun lóða í eigu félagsins og staðfesti með formlegum hætti og að aftur verði teknar upp viðræður milli aðila á uppbyggilegum nótum með framtíðarhagsmuni þessa verkefnis og bæjarfélagsins alls að leiðarljósi,“ segir í bréfi sem Björn Ingi Hrafnsson, talsmaður og einn eigenda Orteka Partners á Íslandi, sendi Hveragerðisbæ í september. Bærinn varð ekki við þessari umleitan. Nú hafa forsvarsmenn fyrirtækisins sent stjórnsýslukæru til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins vegna ákvörðunar bæjarins um að afturkalla úthlutun á fjórum ferðaþjónustulóðum sem félagið hafði fengið undir starfsemi ferðaþjónustu í Ölfusdal. Stjórnsýslukæran var kynnt á fundi bæjarráðs 2. nóvember. Forsaga málsins er sú að hinn 18. ágúst 2016 samþykkti Hveragerðisbær að úthluta fyrirtækjunum lóðunum fyrir þjónustuhús, smáhýsi og gistiskála og tjaldsvæði. Hinn 15. júlí síðastliðinn var úthlutunin afturkölluð.Björn Ingi Hrafnssonvísir/ernir„Forráðamenn kærenda telja að Hveragerðisbær hafi brotið með alvarlegum hætti á rétti kæranda, m.a. með því að sýna af sér valdníðslu og virða ekki jafnræðisreglu gagnvart kæranda en að mati kæranda var Hveragerðisbæ með öllu óheimilt að afturkalla úthlutun lóðanna með þeim hætti sem gert var,“ segir í stjórnsýslukærunni. Þá segir að félagið hafi frá síðustu áramótum verið í vinnu um gerð rammasamnings við Hveragerðisbæ varðandi lóðirnar ásamt fleiri lóðum sem bærinn hafði gefið vilyrði fyrir. „Þá var félagið búið að leggja út í tugmilljóna króna kostnað vegna hönnunar á svæðinu. Dráttur á að framkvæmdir hæfust orsakast af því að bærinn var ekki búinn að afhenda hinar lóðirnar og samningum um heildarsvæðið ekki lokið.“ Í kærunni segir líka að eftir að sveitarfélagið hafi slitið einhliða viðræðum á milli aðila um rammasamning varðandi uppbyggingu hafi kæranda verið veittur mánaðarfrestur til þess að hefja framkvæmdir. Slíkur frestur sé óeðlilega stuttur samanborið við tímafresti annarra aðila sem hafi fengið úthlutaðar lóðir af hálfu sveitarfélagsins. Frestur til að hefja framkvæmdir sé aldrei styttri en 6 mánuðir eftir að úthlutunarhafi geti raunverulega hafið undirbúning framkvæmda. Í fyrirtækjaskrá er Orteka Partners á Íslandi skráð í eigu FjBj ehf. og Þjónustu og viðskiptamiðlunarinnar Hóls ehf., en þau fyrirtæki eru bæði skráð í eigu félagsins Maltice Ltd, sem er skráð erlendis. Brynjar Már Magnússon er skráður stjórnarformaður fyrirtækisins og Baldur Jezorski stjórnarmaður. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er faðir Baldurs, Franz Jezorski, á meðal hluthafa.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira