Fá ekki að mynda á Old Trafford Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 7. desember 2017 23:30 Knattspyrnustjórar Manchester-liðanna, Jose Mourinho og Pep Guardiola. vísir/getty
Einn stærsti leikur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudaginn þegar barist verður um Manchester-borg. Manchester United fær nágrannana í Manchester City í leik sem er alltaf stórleikur, en einstaklega þýðingarmikill í ár þar sem City kemst í ellefu stiga forystu í deildinni með sigri, og í raun setur aðra hendina á Englandsmeistaratitilinn. Þjálfararnir eru strax byrjaðir í sálfræðihernaðinum, og hernaðurinn endar ekki þar. Forráðamenn United hafa hafnað beiðni City um að koma með myndatökumenn á Old Trafford á sunnudag. Teymi frá Amazon hefur fylgt Pep Guardiola og hans mönnum allt tímabilið þar sem unnið er að heimildarmynd um hvað gerist á bak við tjöldin hjá City. Forráðamenn City sendu inn formlega beiðni til United og ensku úrvalsdeildarinnar þar sem beðið var um aðgang að leikmannagöngunum og búningsherbergjum gestanna, en henni var hafnað. Ástæða höfnunarinnar var sú að ekki væri nóg pláss, þar sem nú þegar eru 23 rétthafar með aðgang að svæðinu. Samt eru göngin á Old Trafford og svæðið þar í kring með því stærsta í ensku úrvalsdeildinni, og ekkert félag hefur neitað aðgangi til þessa. Enska úrvalsdeildin sagðist vita af ágrenninginum, en ætlar ekki að skipta sér af, þetta sé algjörlega í höndum United. Ensku rétthafarnir Sky Sports og BT Sport kunna að vera mjög ánægðir með þessa ákvörðun United, en þeir borguðu 5,1 milljarð punda fyrir sjónvarpsréttinn á úrvalsdeildinni á árunum 2016-19. Aðgangur að búningsherbergjum liðanna er ekki inni í þeim pakka, og eru ýmsar fleiri takmarkanir á rétt þeirra.
Enski boltinn Tengdar fréttir Mourinho trúir ekki því sem Pep segir Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, byrjaði sálfræðihernaðinn fyrir leikinn gegn Man. City um næstu helgi um leið og hann var kominn með sitt lið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í gær. 6. desember 2017 14:00 Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Handbolti Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti „Núna er allt betra“ Handbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Sjá meira
Mourinho trúir ekki því sem Pep segir Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, byrjaði sálfræðihernaðinn fyrir leikinn gegn Man. City um næstu helgi um leið og hann var kominn með sitt lið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í gær. 6. desember 2017 14:00