Hvorki þörf á nýrri rétt né fjárrekstri um þjóðveg 1 Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. nóvember 2017 07:00 Gunnar Jónsson, skógræktarbóndi á Króki í Norðurárdal.
Gunnar Jónsson, eigandi jarðarinnar Króks, segir ýmsa möguleika fyrir hendi til að leysa deiluna um fjárrekstur á haustin um land hans að Þverárrétt. „Landeigandinn hefur til dæmis boðið upprekstrarfélaginu þrjá kosti til þess að koma fénu um Króksland til Þverárréttar að hausti. Þeim tilboðum hefur öllum verið hafnað en eigendum jarðarinnar verið boðið upp á þá lausn að afhenda upprekstrarfélaginu tvo þriðju hluta þess lands sem Hæstiréttur dæmdi að væri þeirra eign,“ segir Gunnar. Króksbóndinn gagnrýnir bæði Gunnlaug A. Júlíusson, sveitarstjóra Borgargbyggðar, og Kristján Franklín Axelsson, formann upprekstrarfélagsins fyrir orð þeirra í Fréttablaðinu 1. nóvember. Ekki sé þörf á nýrri rétt eins og haft sé eftir Kristjáni. „Það er heldur ekki þörf á því að reka féð eftir þjóðvegi eitt. Það nægir að virða girðingalög og dóm Hæstaréttar og þiggja þá fyrirgreiðslu sem þeim upprekstrarmönnum hefur lengi staðið til boða. Sá möguleiki virðist ekki vera fyrir hendi. Þess vegna hefur þessu máli verið vísað til dómstóla,“ segir Gunnar. Þá sé haft eftir sveitarstjóranum að upprekstrarfélagið hafi notað hluta af Krókslandinu í 90 ár í þeirri góðu trú að það ætti landið. „Rétt er að geta þess að allan þann tíma var umrætt land þinglýstur hluti jarðarinnar samkvæmt landamerkjaskrá, sem staðfest var af formanni upprekstrarfélagsins. Það er heldur ekki rétt, sem sveitarstjórinn gefur til kynna, að leiðin úr afréttinni til byggðarinnar liggi um einhvers konar einstigi eða „trekt“ í gegnum Krókslandið.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira