Tvær líkamsárásir í Reykjavík í nótt Atli Ísleifsson skrifar 12. nóvember 2017 07:11 Mikill erill var hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Myndin er úr safni. Vísir/Daníel
Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um tvær líkamsárásir í nótt. Á öðrum tímanum var maður handtekinn í Austurstræti grunaður um líkamsárás þar sem hann hafði ráðist á mann að tilefnislausu. Sökum ástands síns var hann vistaður í fangageymslu lögreglu, en sá sem ráðist var á hugðist leita á slysadeild Landspítala. Í dagbók lögreglu segir að klukkan rúmlega þrjú í nótt hafi maður verið handtekinn í Skeifunni grunaður um líkamsárás, brot á vopnalögum og vörslu fíkniefna. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Þá segir að maður hafi verið handtekinn á hótelherbergi í Austurborginni um kvöldmatarleytið í gær. Er sá grunaður um vörslu fíkniefna og brot á lyfja- og vopnalögum. Hann var sömuleiðis vistaður í fangageymslu lögreglu.Fór inn í ólæsta íbúð eldri konu Um svipað leyti var maður í annarlegu ástandi handtekinn í Samtúni í Reykjavík. Maðurinn hafði farið inn í ólæsta íbúð hjá eldri konu en synir konunnar höfðu náð að koma manninum út. Sökum ástands var maðurinn vistaður í fangageymslu lögreglu. Klukkan rúmlega tvö í nótt var maður í annarlegu ástandi handtekinn við Flatahraun í Hafnarfirði. Hann hafði verið með hótanir og neitað að fara að fyrirmælum lögreglu. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu. Lögregla hafði einnig afskipti af manni í annarlegu ástandi þar sem hann var að valda ónæði við íbúðir eldri borgari í Breiðholti um klukkan 21. Við afskipti lögreglu óskaði hann eftir gistingu í fangageymslu lögreglu þar sem hann hafði ekki í önnur hús að venda. Loks voru afskipti höfð af þrettán ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna, sviptir ökuréttinum og vörslu fíkniefna.
Mest lesið Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Erlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Innlent Bindur vonir við Vor til vinstri Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent Á leið til Suður-Afríku með syni sína í meðferð vegna úrræðaleysis Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Fleiri fréttir Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Sjá meira