Innlent

Veitur lækka verð á rafmagnsdreifingu

Atli Ísleifsson skrifar
Í tilkynningu frá Veitum segir lækkunina megi rekja til hagkvæms rekstrar fyrirtækisins.
Í tilkynningu frá Veitum segir lækkunina megi rekja til hagkvæms rekstrar fyrirtækisins. Vísir/gva
Veitur hafa ákveðið að lækka verð á rafmagnsdreifingu um 7,5 prósent í dag, 1. nóvember. Í tilkynningu frá Veitum segir lækkunina megi rekja til hagkvæms rekstrar fyrirtækisins.

„Þetta er í annað skipti á innan við ári sem verð fyrir rafmagnsdreifingu lækkar. Síðast var það 1. janúar síðastliðinn. Þá lækkaði það um 5,8%.

Rafveita Veitna þjónar svæðinu frá Akranesi í vestri suður í miðjan Garðabæ. Á þessu svæði býr meira en helmingur þjóðarinnar og þar er mikill atvinnurekstur. Helstu mannvirki dreifikerfisins eru aðveitustöðvar, spennistöðvar og háspennustrengir á milli þeirra, tengikassar í götum og heimtaugar. Samanlögð lengd allra strengjanna er um 3.500 kílómetrar, sem svarar gróflega til vegalengdarinnar frá Reykjavík til Moskvu í Rússlandi.

Dreifingarkostnaðurinn, sem oft er um helmingur rafmagnsreiknings heimila, skiptist í fast gjald á dag og svo verð á hverja notaða kílóvattstund. Báðir þessir þættir lækka um 7,5% en aðrir hlutar gjaldskrárinnar standa í stað. Auk rafmagnsdreifingarinnar innheimta Veitur flutningsgjald fyrir Landsnet og jöfnunargjald og virðisaukaskatt fyrir ríkissjóð. Þessir þættir rafmagnsreikningsins breytast ekki nú um mánaðamótin. Sala rafmagns er á samkeppnismarkaði og fólk og fyrirtæki geta valið á milli raforkusala,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×