Innlent

Tveggja ára fangelsi fyrir ítrekað ofbeldi gegn börnum sínum þremur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Móðirin var svipt ökuréttindum í fjóra mánuði fyrir að hafa ekið undir áhrifum amfetamíns. Hún ók bíl sínum inn á svæði strætisvagna við Hlemm, við lögreglustöðina í Reykjavík.
Móðirin var svipt ökuréttindum í fjóra mánuði fyrir að hafa ekið undir áhrifum amfetamíns. Hún ók bíl sínum inn á svæði strætisvagna við Hlemm, við lögreglustöðina í Reykjavík. Vísir/GVA
Móðir var dæmd í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur  í gær fyrir endurtekið ofbeldi gegn börnum sínum þremur yfir margra ára tímabil. Eitt barnanna er á leikskólaaldri en hin á grunnskólaaldri.

Móðirin neitaði sök en lýsingar barnanna á ofbeldi fá stoð í læknisvottorðum og óvenjulega mörgum áverkum á líkama þeirra. Auk þess að greina frá ofbeldi gagnvart sjálfu sér lýstu þau öll ofbeldi móður gegn systkinum. Börnin búa í dag hvert á sínu heimilinu.

Í dómnum yfir móðurinni kemur fram að hún hafi slegið börn sín með belti, höndum, rifið í hár og eyru auk þess að slá höfði utan í vegg. 

Trúverðugur framburður barnanna

Frásögn barnanna var með sambærilegum hætti, ítarlegar og skýrar. Öll voru sammála um að elsta systkinið hefði orðið fyrir mestu ofbeldi. Framburðurinn þótti afar trúverðugur og lýstu börnin öll létti yfir því að hafa sagt frá ofbeldinu en jafnframt hræðslu vegna viðbragða móðurinnar.

Móðirin þvertók fyrir að hafa beitt börnin ofbeldi en viðurkenndi að hafa brugðist skyldum sínum í um eitt ár, frá 2015-2016. Hún sagði fyrrverandi eiginmann hennar hafa beitt börnin ofbeldi auk þess áverkar væru tilkomnir úr leikjum og íþróttum.

Í rökstuðningi dómara segir að hafa verði í huga að brotin stóðu yfir um margra ára skeið og beindust að þremur ungum börnum hennar. Þá voru brotin framin á heimilum barnanna þar sem þau eigi að hafa öruggt skjól. 

3,9 milljónir í bætur til barnanna

Konan var dæmd til að greiða elsta barni sínu 1,5 milljónir króna í bætur en þeim yngri 1,2 milljónir króna. Krafist hafði verið 3,5 milljóna króna fyrir elsta barnið en þrjár milljónir króna fyrir hin tvö.

Þá var konan dæmd fyrir að hafa ekið bíl undir áhrifum amfetamíns inn á umferðarsvæði Hlemms, framan við lögreglustöðina, þar sem öll umferð utan strætisvagna er bönnuð. Var hún handtekin og við leit á lögreglustöð fundust þrír pokar með fíkniefnum í handarkrikum hennar.

Auk þess fékk hún dóm fyrir að hafa í mars síðastliðnum verið með 14 grömm af kókaíni í fórum sínum. 

Dóminn í heild má lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×