Innlent

Hálka víða á Suðurlandi

Atli Ísleifsson skrifar
Á Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir eða snjóþekja á vegum.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir eða snjóþekja á vegum. Vísir/GVA
Hálka er á Mosfellsheiði og Þrengslum og eins er hálka mjög víða á Suðurlandi, einkum í uppsveitum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þar segir að á Vesturlandi og Vestfjörðum sé hálka eða hálkublettir eða snjóþekja á vegum.

„Þæfingsfærð er á Holtavörðuheiði, í Súgandafirði og á Þröskuldum.

Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Norðurlandi en þæfingsfærð er á Þverárfjalli. Éljagangur er í Skagafirði og allt austur á Langanes.

Á Austurlandi eru hálkublettir á flestum fjallvegum en greiðfært á láglendi. Greiðfært er með Suðausturströndinni,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×