Spurningarmerki sett við notkun stoðneta eftir sögulega rannsókn Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 4. nóvember 2017 07:00 Æðamynd af fyrstu 12 sjúklingunum sem tóku þátt í rannsókninni. Æðarnar merktar með stjörnu voru notaðar. vísir/imperial college london
Lítill sem enginn munur er á ávinningi þess fyrir sjúklinga að gangast undir kransæðavíkkun þar sem stoðnet er notað og að gangast undir lyfjameðferð. Tvíblinda rannsóknin ORBITAL er sú fyrsta sinnar tegundar og hefur vakið gríðarlega athygli. Hún setur spurningarmerki við aðferð sem notuð hefur verið á hundruð þúsunda sjúklinga með stöðuga hjartaöng um allan heim á undanförnum áratugum. Grein um hana birtist í læknisfræðiritinu Lancet. Stoðnet er agnarsmá járngrind sem opnar stíflaðar æðar. Þessi litlu tæki hafa bjargað lífi fjölmargra einstaklinga sem fengið hafa hjartaáföll. Tvö hundruð einstaklingar með stöðuga hjartaöng, eða stöðugan brjóstverk, tóku þátt í rannsókninni. Að lokinni sex vikna lyfjameðferð fór hópurinn í hjartaþræðingu. Af þeim fengu 105 stoðnet. Hinir 95 fóru einnig í hjartaþræðingu en eftir að læknarnir höfðu þrætt örmjóan æðalegg í slagæð þeirra biðu þeir í örfáar mínútur og drógu legginn út án þess að koma stoðneti fyrir. Þetta er í eitt af örfáum skiptum í sögu hjartasjúkdómafræðinnar þar sem fölsk aðgerð er framkvæmd. Stoðnetin gerðu sitt hjá þeim sem þau fengu. Blóðflæði jókst verulega. Sex vikum síðar sýndu báðir hópar minni einkenni og voru þrekmeiri. Enginn marktækur munur var á hópunum.Um 700 kransæðavíkkanir eru gerðar árlega á Landspítala en á heimsvísu hundruð þúsunda.nordicphotos/getty„Þetta er alveg stórmerkilegt og er í raun brautryðjendastarf. Rannsakendurnir eiga mikið hrós skilið,“ segir Þorbjörn Guðjónsson, hjartalæknir. Hann bendir þó á að hér sé um að ræða rannsókn á stabílum kransæðasjúkdómi og þýðið, sem sé lítið, sé skipað tiltölulega hraustum einstaklingum með einnar æðar sjúkdóm. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæðan árangur og betri lífsgæði sjúklinga eftir kransæðavíkkun. Þó er ekki hægt að útiloka lyfleysuáhrif þrátt fyrir að aðgerðin sýni aukið blóðflæði. Á Landspítalanum hafa þúsundir kransæðavíkkana verið framkvæmdar og í 90 prósent tilvika eru stoðnet notuð. „Niðurstaða [rannsóknarinnar] er eitthvað sem við öll getum verið sammála um, að það er sjálfsagt að reyna lyfjameðferð áður en sjúklingi er vísað til hjartaþræðingar,“ segir Ingibjörg Guðmundsdóttir, hjartalæknir og yfirlæknir hjartaþræðinga á LSH. Hún segir að um það bil 700 kransæðavíkkanir séu gerðar á ári. Stór hluti þeirra sé vegna stöðugrar hjartaöngvar. Stoðnet voru tekin í notkun snemma á tíunda áratug síðustu aldar. Þau útheimta ekki meiriháttar aðgerð eins og hjáveituaðgerð. Rannsóknarhöfundar ORBITAL segja að hjartasérfræðingar hafi hingað til ekki tekið vel í hugmyndir um lyfleysurannsókn á virkni kransæðavíkkana. Það sé almennt viðurkennt að kransæðavíkkun beri ótvíræðan árangur og að það geti talist á siðferðilega gráu svæði að beita lyfleysumeðferð á einstaklinga í þessum aðstæðum. „Við vitum það að lyfjameðferð er árangursrík í fólki með stabílan sjúkdóm, en ef lyfjameðferð virkar ekki eða reynist þeim erfið, þá er eðlilegt að vísa fólki í hjartaþræðingu,“ segir Ingibjörg. ORBITAL-rannsóknin tók aðeins til einstaklinga með stöðuga hjartaöng og niðurstöður hennar hafa engin áhrif á þá sem gangast undir kransæðavíkkun vegna bráðs kransæðaheilkennis, þar á meðal vegna kransæðastíflu með eða án ST-hækkunar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira