Innlent

Gunnar Bragi þingflokksformaður

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá fundi Miðflokksins í húsakynnum Alþingis í morgun.
Frá fundi Miðflokksins í húsakynnum Alþingis í morgun. Vísir/Ernir
Gunnar Bragi Sveinsson var kjörinn formaður þingflokks Miðflokksins á fundi flokksins í húsakynnum Alþingis í morgun. Formaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bar upp tillöguna á fundinum og var hún samþykkt samhljóða að sögn Gunnars Braga. Hann þekkir til hlutverksins frá tíma sínum í Framsóknarflokknum.

„Það er mikill hugur í okkur og menn eru mjög vel stemmdir,“ segir Gunnar Bragi. Fundurinn hafi verið á léttum nótum og andinn verulega góður. Það muni taka vikuna að komast niður á jörðina eftir úrslit helgarinnar en Miðflokkurinn fékk sjö þingmenn í fyrstu kosningum flokksins.

Þingmaðurinn segir að fundur Sigmundar Davíðs með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, hafi verið til umræðu. Fylgst er með gangi mála á Bessastöðum í beinni útsendingu á Vísi í allan dag.

„Okkur finnst eðlilegt að flokkur sem byrjaði með autt hvítt blað fyrir rúmum þremur vikum fái tækifæri til að mynda ríkisstjórn,“ segir Gunnar Bragi. Ekkert óeðlilegt væri við það að flokkurinn fengi umboð til stjórnarmyndunar.

Aðspurður hvort breytt staða kvenna á Alþingi eða fjöldi þingmanna miðað við hvernig atkvæðin dreifast um landið hafi verið til umræðu segir Gunnar Bragi engin slík mál hafa verið rætt. Nú sé á dagskrá áframhaldandi uppbygging flokksins, koma skipulagi á hann og móta stefnu til langtíma.

„Við erum afar ánægð með úrslitin og stolt að fólk skyldi kjósa okkur í þessum mæli.“

 


Tengdar fréttir

Gunnar Bragi hættir í Framsóknarflokknum

Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur ákveðið að segja sig úr Framsóknarflokknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×