Finnst óþægilegt að reiða fram posann strax í sjúkrabílnum Sveinn Arnarsson skrifar 25. október 2017 09:00 Slysahætturnar leynast víða á ferðamannastöðum á Suðurlandinu. vísir/pjetur
Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi eru settir í þá stöðu að rukka erlenda ferðamenn um greiðslu fyrir notkun sjúkrabíls á meðan á ferðinni stendur. Þetta finnst sjúkraflutningamönnunum óþægilegt og vilja helst að Heilbrigðisstofnunin sjálf sjái um að rukka ósjúkratryggða fyrir ferð með sjúkrabílum. Samkvæmt reglugerð fyrir ósjúkratryggða skal greiða gjald til rekstraraðila sjúkraflutninga. Er upphæðin 40.600 krónur. Einnig þarf að greiða 2.500 króna gjald til eiganda bifreiðarinnar á hvern ekinn kílómetra. Þar sem umdæmi HSU er nokkuð víðfeðmt getur reikningurinn sem sjúkraflutningamennirnir þurfa að rukka orðið talsvert hár. „Við höfum bent á þetta áður en ekkert hefur breyst í þessum efnum,“ segir Stefán Pétursson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. „Það er óþægilegt fyrir sjúkraflutningamenn sem eru að sinna sjúklingum og vinna sér inn traust þeirra að þurfa í sömu andrá að taka upp posa og rukka ferðamenn um þetta.“ Sjúkraflutningamenn á Suðurlandi hafa lent í því að fá tilkynningu um slasaðan ósjúkratryggðan einstakling við Gullfoss sem þurfti til Reykjavíkur. Klukkan fer í gang við útkall og þarf bíllinn að fara frá Selfossi. Síðan þegar búið er að sinna sjúklingi á vettvangi er hann fluttur til Reykjavíkur. „Tíminn heldur samt áfram að ganga þar til bíllinn er kominn aftur á Selfoss og þurfum við því að áætla þann aksturstíma. Því erum við að rukka fjóra tíma fyrir svona,“ bætir Stefán við. Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU, segir þetta verklag til hægðarauka fyrir stofnunina. „Gjald fyrir sjúkraflutninga erlendra ferðamanna, hjá HSU, er innheimt samkvæmt gjaldskrá. Til þæginda fyrir bæði þjónustuþega og fyrir okkur, er innheimt gjald af sjúklingi fyrir sjúkraflutning á staðnum, eins og aðra heilbrigðisþjónustu HSU,“ segir Herdís. „Posarnir eru einnig notaðir til að spara öllum fyrirhöfn, meðal annars við að senda reikninga eftir á til erlendra ferðamanna.“ Stefán segir það ekkert óeðlilegt að greitt sé fyrir slíka þjónustu. Það sé bara erfitt fyrir einstaklinga á vettvangi að þurfa að taka við greiðslu úr hendi skjólstæðinga sinna. „Það er einnig orðið verklag hjá okkur að við þurfum að gera fólki grein fyrir kostnaðinum við þjónustuna. Það þarf að vita að þjónustan er ekki ókeypis,“ segir Stefán.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Erlent Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Innlent Handtekinn eftir röð innbrota Innlent Fleiri fréttir Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Sjá meira