Komu í veg fyrir tjón í Elliðaám Hersir Aron Ólafsson skrifar 15. október 2017 19:30
Með skjótum viðbrögðum tókst að aftra meiriháttar tjóni þegar olía lak í Grófarlæk í Fossvogsdal í gær. Unnið verður að hreinsun lækjarins næstu daga, en heilbrigðisfulltrúi segir að blessunarlega hafi lítið af olíu borist niður í Elliðaár. Ástæða slyssins var bilun í olíugildru hjá N1 við Engihjalla í Kópavogi. Bilunin olli því að umtalsvert magn smurolíu lak úr gildrunni og barst í lækinn. Þar sem slysið átti upptök sín í Kópavogi kom það á borð heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis að ganga í málið. Heilbrigðisfulltrúi segir gott að ekki hafi farið verr, enda geti smurolía verið afar erfið við að eiga. Grófarlækur rennur í Elliðaárnar, en þar er viðkvæmt lífríki sem illa þolir olíumengun. Gatnamálastjóri Kópavogsbæjar segir að tekist hafi að afstýra miklu tjóni með skjótum viðbrögðum. Þannig voru slökkviðliðsmenn og síðan fulltrúar bæjarins komnir á svæðið örskömmu eftir að tilkynning barst eftir hádegi í gær. Lækurinn er nú lagður sérstökum dúkum sem ætlað er að sjúga í sig olíuna. Karl segir að í kjölfarið þurfi að fara í umfangsmeiri aðgerðir til að hreinsa olíu úr gróðri og jarðvegi, en mengun vegna lekans barst m.a. inn á einkalóð. Unnið verði að þessum framkvæmdum ásamt fulltrúum frá Reykjavíkurborg, Orkuveitunni og Olíudreifingu. Heilbrigðisfulltrúi bendir á að þrátt fyrir að í þessu tilfelli hafi einfaldlega verið um bilun að ræða sé full ástæða til að fara ávallt varlega við meðhöndlun olíu, enda sé hún afar mengandi spilliefni.
Mest lesið Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Innlent Sprenging í Osló og stórt svæði girt af Erlent „Alvarlegasta árásin gegn dönskum innviðum til þessa“ Erlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Viðskipti innlent Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Innlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent Errol Musk sakaður um að misnota börn sín Erlent Fóru með fleipur um einhverfu og bóluefni Erlent „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Erlent Fleiri fréttir Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Holskefla í kortunum Bílslys í Laugardal „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Örlög hjartanna enn óráðin Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa Forsetahjónin á leið til Finnlands Benti á mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Mæla hiklaust með lyfinu á meðgöngu ef þörf þykir á Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Vara við svikapóstum frá Ríkisskattstjóra Dularfullir drónar og umdeildar kenningar um einhverfu og parasetamól Telja sig vita hverjir grímuklæddu mennirnir eru Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Aðeins helmingur telur sig við góða heilsu Rannsaka húsbrot og eldsvoða á Sauðárkróki Krefur Reykjavíkurborg um frekari svör vegna fundargerðar Sjá meira