Úkraína á lista yfir örugg ríki Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. ágúst 2017 08:24 Útlendingastofnun segir mannréttindi almennt virt í Úkraínu, að frátöldum þremur héröðum. Vísir/Stefán
Útlendingastofnun hefur ákveðið að bæta Úkraínu, að undanskildum héruðunum Donetsk, Luhansk og Krím, á lista yfir örugg ríki. „Úkraína er lýðræðisríki og þar eru ekki stundaðar kerfisbundnar ofsóknir gegn fólki. Það er mat stofnunarinnar að almennt megi telja aðstæður í Úkraínu góðar og að fullnægjandi aðstoð og úrræði séu til staðar fyrir borgara landsins, þegar litið er til annarra svæða en átakasvæðanna í austurhluta þess. Engum umsækjanda frá öðrum héruðum en þeim þremur sem undanskilin eru hefur verið veitt alþjóðleg vernd á Íslandi,“ segir í frétt á vef stofnunarinnar. Ríkisborgarar Úkraínu hafa notið áritunarfrelsis inn á Schengen-svæðið síðan 11. maí 2017 og er Úkraína á lista yfir örugg ríki m.a. í Bretlandi, Hollandi og Lúxemborg. Í Noregi er ekki stuðst við lista yfir örugg ríki en þar eru umsóknir um alþjóðlega vernd frá ríkisborgurum Úkraínu afgreiddar í flýtimeðferð, sem eru 48 klukkustundir. „Mannréttindi eru almennt virt í Úkraínu og kveður stjórnarskrá landsins á um jafnræði borgaranna. Úkraína er m.a. aðili að mannréttindasáttmála Evrópu, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og Genfarsáttmálanum, sem skuldbindur ríki til að senda ekki fólk þangað sem það kann að vera í hættu,“ segir Útlendingastofnun. Frekari rökstuðning er að finna í ákvörðun stofnunarinnar.
Mest lesið Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Innlent Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Innlent „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Innlent Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Innlent Anna ljósa fallin frá Innlent Jónína vill taka við af Ásmundi Einari Innlent Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Erlent Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Veður Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Innlent Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Innlent Fleiri fréttir Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið „Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Ekki búin að ákveða hvort þjóðaröryggisráð verði kallað saman „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Hugmyndir kynntar um „miðstöð jaðaríþrótta“ í Toppstöðinni Telja dagana frá síðasta innbroti Rannsaka líkamsárás og fjárkúgun Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Skvísur séu almennt frekar næringarsnauðar og börnin geti orðið matvönd Sjá meira