Tommi fór í sex vikna McDonald's-æfingabúðir en opnaði Hard Rock Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. ágúst 2017 21:26 Hamborgarana hans Tomma má nú fá víða um heim. Vísir/gva
Verslunarmiðstöðin Kringlan fagnar 30 ára afmæli í ár. Hún hefur um árabil verið einn af hornsteinum íslenskrar verslunar en þó mátti ekki miklu muna að hún yrði umtalsvert minni en við þekkjum í dag. Þetta segir Tómas Andrés Tómasson, betur þekktur sem Hamborgarbúllu-Tómas, en rætt var við hann í Reykjavík síðdegis í tilefni stórafmælis Kringlunnar. Tommi var meðal þeirra fyrstu sem ákváðu að vera með í verslunarmiðstöðvarævintýrinu en einn forsprakka verkefnisins, Sigurður Gísli Pálmason sem nú er kenndur við Hagkaup, sannfærði Tomma um að opna útibú fyrir McDonald's-hamborgarakeðjuna í húsinu. Tommi segir að í upphafi hafi gengið erfiðlega að sannfæra kaupmenn um að kaupa sér verslunarpláss í Kringlunni. Lítil trú hafi verið á því að slík miðstöð gæti gengið á hinum litla íslenska markaði. Kaupmenn sem höfðu látið slag standa voru dregnir á fund þar sem þeim var tjáð að svo gæti farið að húsnæðið yrði minnkað um þriðjung, jafnvel meira, í ljósi þess hversu erfiðlega gekk að selja pláss í Kringlunni.Sannfærðust í Lundúnarferðum Tommi sá að eitthvað þyrfti að gera í málinu og hvatti hann því forráðamenn hússins til að fara með hóp af kaupmönnum til Lundúna að skoða verslunarmiðstöðvar. „Ég tók þátt í að fara út með tvo hópa af kaupmönnum og þá allt í einu opnuðust augu þeirra. Þeir sáu að þetta ætti framtíðina fyrir sér,“ segir Tommi. Aldrei varð þó neitt úr því að Tommi sæi um rekstur McDonald's í Kringlunni - þrátt fyrir að hafa verið sendur í sex vikna McDonald's-æfingabúðir í LA af forsvarsmönnum keðjunnar. Einhvers staðar á leiðinni hitti ég Hard Rock-menn og þá fór ég að vega og meta hvort ég ætti að gera Hard Rock eða McDonald's,“ segir Tommi. Hard Rock hafi orðið ofan á. Hann hefur þó hætt öllum afskiptum af Hard Rock sem nú rekur einn veitingastað í Lækjargötu. Þess í stað hefur hann einbeitt sér að Hamborgarabúllu Tómasar sem nú má finna í 6 löndum víða í Evrópu; svo sem í Berlín, Lundúnum, Kaupmannahöfn og Osló, í Róm, Malmö og í Árósum. Spjall þeirra Reykjavíkur sídegis-manna við Tomma má heyra hér að neðan.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Fleiri fréttir Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Sjá meira