Skrautblóm í harðgerðri náttúru: Eldlilja trónir ein á heiði fyrir ofan Þórshöfn Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 25. júlí 2017 12:31 Gurrý segir alltaf ánægjulegt að finna blóm á óvæntum stöðu. Eldliljan sé einstaklega harðgerð og því gæti hún vel lifað þarna áfram og jafnvel dreift úr sér. Tíminn eigi eftir að leiða þetta í ljós. Vísir/Vilhelm
Það var heldur betur óvænt sjón sem mætti Bjarna Óskarssyni sem var á ferðalagi um Þórshöfn á Langanesi. Uppi á hæð í nágrenni við bæinn sá hann villta eldlilju, sem yfirleitt sést aðeins sem skrautblóm í görðum hér og þar um land allt. Liljan stendur þarna ein á hæðinni og trónir yfir öllu eins og sannri eldlilju sæmir. Drottning í harðgerðu ríki sínu. „Ég veit ekki hvort einhver hafi sett þetta þarna en það var ekkert jarðrask í kringum þetta þannig að þetta virðist vera sjálfsáð,“ segir Bjarni í samtali við Vísi. Hann segist ekki vita hvað hún hafi verið þarna lengi. Hann hafi verið á ferð þarna með heimamanni sem hafði heldur aldrei séð liljuna þarna áður. Bjarna finnst þetta mjög merkilegt enda Þórshöfn ekki þekkt fyrir að vera hlýjasta svæðið á Íslandi.Eldliljan er sú eina á svæðinu. Líklegast hefur nú náð að sá sér með aðstoð frá fugli sem hafi borið fræ af plöntunni þangað.BjörnHarðgert blóm Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur, einnig þekkt sem Gurrý, segir í samtali við Vísi að eldliljan sé fremur harðgert blóm og líklega hafi fugl sáð henni fyrir slysni. „Það er nú örugglega einhver sem hefur aðstoðað hana við að komast þangað. Eldliljur geta fjölgað sé með litlum laukum sem eru kallaðir æxlilaukar og eru svartar kúlur í blaðöxlum á þessari plöntu og það getur verið að fugl hafi tekið þetta, haldið að þetta væri eitthvað góðgæti, flogið með þetta upp á hæð því eldliljur eru harðgerðar og algengar um allt land í görðum. Það er sennilegasta skýringin,“ segir Gurrý í samtali við Vísi.Gæti myndast þyrping Eldliljan er garðplanta sem var áður fyrr mjög vinsæl í mörgum görðum. Hún datt síðan úr tísku að sögn Gurrýjar því fólki fannst þetta vera púkalegt og gamaldags ömmublóm. Hún sé nú að ganga í endurnýjun lífdaga enda afar blómfagurt blóm. Aðspurð hvort eldliljan eigi eftir að hertaka Langanes segir Gurrý það ólíklegt. „Ég sé ekki fyrir mér að hún verði eins og skógarkerfill, að hún fari að leggja undir sig Langanesið,“ segir Gurrý en hún nefnir að hún gæti komið sér fyrir þarna og lifað áfram ef jarðvegurinn er góður. „Hún er nægjusöm og dugleg og ef hún nær að þroska nýja æxlilauka þá gæti myndast þarna þyrping af eldliljum en tíminn verður að leiða það í ljós. Nú hefur breyst svo mikið veðurfarið. Plöntur sem voru alltaf til friðs og gerðu aldrei neitt af sér, þær eru allt í einu farnar að dreifa sér um allt,“ segir Gurrý og tekur bjarnarklóna sem dæmi.Veðurbreytingar hafa áhrif Bjarnarklóin var aðeins glæsilegt garðblóm áður en hún varð að nýrri plágu sem Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög hafa hafist við að reyna að uppræta líkt og Vísir greindi frá í síðustu viku. Gurrý býst þó ekki við því að eldliljan feti ekki sömu spor og til að mynda bjarnarklóin eða lúpínan. Gurrý segir að það sé alltaf gaman þegar það dúkkar upp planta á óvæntum stað og að þetta gerist af og til. Áhugasamir geta nú flykkst á Þórshöfn og litið þessa nýkringdu drottningu hliðanna á Þorshöfn, eigin augum.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Innlent Fleiri fréttir Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Sjá meira