Fótbolti

Áhuginn og jafnréttishugurinn fyllir stelpurnar þjóðarstolti

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Í gær var ein vika í fyrsta leik stelpnanna okkar á EM í Hollandi en eftir sex daga mæta þær stórliði Frakklands í Tilburg. Spenningurinn er mikill og umfjöllunin um liðið og áhuginn á því aldrei meiri að sögn stelpnanna.

Stelpurnar okkar æfðu í sólskininu í Laugardalnum í gær og var augljóslega mikill spenningur í liðinu enda stutt í fyrsta leik. Íslenska liðið var í mikilli hópeflisferð á Selfossi um síðustu helgi en í gærmorgun tók raunveruleikinn aftur við.

Leikmenn liðsins greina mikinn áhuga á liðinu hjá fólkinu í landinu og fjölmiðlaumfjöllunin hefur aldrei verið meiri. Maður flettir vart blöðum eða skiptir um rás á sjónvarpinu án þess að rekast á eina af stelpunum okkar.

„Þetta er ótrúlega gaman en aðeins öðruvísi en ég hef upplifað áður. Það er svolítið mikið að gera - meira en maður er vanur,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður íslenska liðsins.

„Það er ótrúlega gaman að sjá þetta koma svona sterkt inn núna, sérstaklega í kringum þetta mót. Maður finnur fyrir ótrúlegum stuðningi frá fjölmiðlum á Íslandi og þetta dreifir úr sér til almennings. Þeir eru líka 100 prósent með okkur og það er geggjað að fá að upplifa þetta og vera með í þessu.“

Hólmfríður Magnúsdóttir er að fara á sitt þriðja stórmót. Hún segir umfjöllunina aldrei hafa verið meiri og er þakklát fyrir hana en bendir á að stelpurnar eiga ekkert minna skilið.

„Þetta er bara frábært. Við erum búnar að vinna fyrir þessu. Við eigum þetta skilið enda erum við að fara á okkar þriðja stórmót. Við viljum athygli og við viljum síðan skila þessu inn á vellinum þarna úti. Þetta er frábært. Það eru allir sem þekkja mann úti á götu og allir að segja gangi þér vel sama hvort maður gengur inn á veitingastað eða búð. Maður finnur stuðninginn frá öllum Íslendingum,“ segir Hólmfríður Magnúsdóttir.

Markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir tekur í sama streng og samherjar sínir og fagnar því að íslenska þjóðin sé komin aftur í EM-partígírinn, ef hún fór þá einhverntíma úr honum eftir ævintýri strákanna í Frakklandi í fyrra.

„Þetta fyllir mig þjóðarstolti. Ég er stolt af samfélaginu. Það er svo mikill jafnréttishugur í Íslendingum. Það er svo mikill hugur í Íslendingum og það var geggjað að sjá hvað strákarnir fengu fyrra í fyrra. KSÍ lærði svo mikið af þeirri keppni og þjóðin er að halda áfram í þessu partí. Núna eru þetta við og það eru allir með. Maður finnur fyrir ótrúlega miklum krafti frá öllum,“ segir Guðbjörg Gunnarsdóttir.

Alla fréttina úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Þjóðin áfram í partígír

Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður íslenska kvennalandsliðsins, fyllist þjóðar­stolti við að sjá áhugann á stelpunum okkar fyrir EM. Er klár í fyrsta leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×